Miðvikudagur 14. október 2026

ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Val

Eini leik dagsins í Bestu deild kvenna var að klárast en það voru dömurnar okkar í ÍBV sem mættu Íslandsmeisturum Val á Hlíðarenda.

Fotbolti.net segir hér skemmtilega frá leiknum:

Eftir markalausan fyrri hálfleik tók ÍBV forystuna í upphafi seinni hálfleiks. „EYJAKONUR KOMNAR YFIR!!! Lára Kristín gefur skelfilegan bolta til baka sem ratar beint á Söndru sem er komin ein í gegn og klárar frábærlega, niðri og til vinstri,“ skrifaði Kári Snorrason í beinni textalýsingu er Sandra Voitane kom gestunum yfir.

ÍBV varðist vel í kjölfarið með Guðný Geirsdóttir í banastuði í markinu. Þetta minnti á leik þessara liða á þessum sama velli í fyrra. Þá var staðan markalaus lengi vel og ÍBV virtist ætla að sigla sigrinum þangað til Valur gerði sigurmarkið í uppbótartíma.

Í þetta skiptið gerðist það sama nema núna jafnaði Valur í uppbótartíma í staðinn fyrir að skora sigurmark. Ásdís Karen Halldórsdóttir, sem hefur verið mjög góð í sumar, skoraði eftir darraðadans í teignum á 93. mínútu.

Lokatölur 1-1 sem í raun svekkjandi niðurstaða fyrir bæði lið þó ÍBV hefði auðvitað tekið stigið fyrir leik.

Valur er á toppnum með tveimur stigum meira en Selfoss og er ÍBV í sjötta sæti með ellefu stig, fimm stigum minna en toppliðið.

Fotbolti.net sagði fyrst frá.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search