Stelpurnar okkar mættu Hauka-stúlkum á þriðjudaginn í þriðju síðustu umferð Olís-deildar kvenna.
Í fyrri hálfleik var jafnt á nánast öllum tölum en liðin skiptust aðeins á að hafa frumkvæðið og var staðan jöfn 13-13 þegar honum lauk.
Í síðari háfleiknum héldu leikar áfram að vera jafnir en stelpurnar okkar náðu 3 marka forystu, 16-19, þegar um stundarfjórðungur var eftir að leiknum. Heimakonur neituðu þó að gefast upp og náðu að jafna 20-20 þegar 8 mínútur lifðu leiks. Síðustu mínúturnar skoruðu liðin aðeins 1 mark hvert og lokastaðan því 21-21 og hvort lið tók sitt stig út úr leiknum.
Darija varði frábærlega í marki ÍBV, 13 skot (50%) en Marta varði 2 skot.
Mörk ÍBV í leiknum:
Sunna 5, Birna 3, Karolina 3, Elísa 3, Hanna 3, Ásta 2, Harpa 1 og Lina 1.
Nú fara stelpurnar í pásu vegna landsliðsverkefnis hjá A-landsliði kvenna. Þar eigum við 4 fulltrúa: Birnu, Hönnu, Hörpu og Sunnu og óskum við þeim góðs gengis í verkefninu sem er framundan.
Næsti leikur hjá stelpunum er þriðjudaginn 30.mars þegar þær fara í heimsókn í Garðabæinn og mæta Stjörnunni í næst síðustu umferð í deildinni. Sá leikur verður betur auglýstur þegar nær dregur.