ÍBV mætti á Jáverk-völlinn þar sem þeir mættu Selfossliðinu. ÍBV lenti undir á 30. mínútu en náðu að jafna rétt fyrir hálfleik þegar að Telmo Castanheira setur boltann í markið eftir hornspyrnu frá Guðjóni Pétri.
Guðjón Pétur Lýðsson kemur svo ÍBV yfir á 47. mínútu og Breki Ómarsson skorar þriðja mark ÍBV á 51. mínútu.
Það var svo Gonzalo Zamorano sem skorar fjórða mark ÍBV á 89. mínútu.
ÍBV er því í 2. sæti með 41 stig. Fram í því fyrsta með 51. stig en kórdrengur í því þriðja með 37 stig.
Næsti leikur ÍBV er gegn Fjölni þriðjudaginn 7.september kl. 17:30 á útivelli.