Föstudagur 13. nóvember 2026

ÍBV með fyrsta sigurinn í einvíginu

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna fengu lið Stjörnunnar í heimsókn í gær í fyrsta leik liðanna í einvígi þeirra í úrslitakeppni Olísdeildar kvenna

Stelpurnar okkur spiluðu hreint frábæran varnarleik í dag og fylgdi virkilega öflug markvarsla hjá Mörtu í markinu í kjölfarið. Þær gerðu gestunum ótrúlega erfitt fyrir sóknarlega og héldu þeim í 6 mörkum í hálfleik en staðan að honum loknum var 10-6.

Í síðari hálfleik var varnarleikurinn hjá liðunum báðum í forgrunni og ekki mikið skorað. Ótrúlega mikil barátta, samvinna og leikgleði skein af okkar stelpum og nýttu þær orkuna í húsinu vel sér í hag. Við fengum fullt hús (miðað við takmarkanir) og hreint magnaða stemningu enda óhætt að segja að alvöru úrslitakeppnis-bragur hafi verið yfir öllu.

Stelpurnar okkur tryggðu sér fyrsta sigurinn í þessu einvígi og eru komnar í 1-0. Lokatölur í dag voru 21-17.

Marta varði eins og áður sagði frábærlega í markinu 12 skot (41,4%)

Mörk ÍBV í leiknum:

  • Hrafnhildur Hanna 6,
  • Ásta Björt 6,
  • Harpa Valey 4,
  • Karolina 1,
  • Ólöf 1,
  • Sunna 1,
  • Lina 1
  • Elísa 1.

Hrafnhildur Hanna var valin Kráar leikmaður dagsins og Eva Rut Gunnlaugsdóttir Kráar stuðningsmaður dagsins. Fengu þær að launum gjafabréf frá Kránni!

Næsti leikur stelpnanna verður í Mýrinni í Garðabæ á sunnudaginn kl.13:30.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð2Sport en miðasala á leikinn er hafin og hægt er að tryggja sér miða hér: Trix.is

Við treystum á að Eyjamenn fjölmenni í Mýrina á sunnudaginn og styðji stelpurnar okkur til sigurs!

Greint er frá inn á facebooksíðu handboltans.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search