Nú geta allt að 300 manns mætt í stúkuna
Þetta er leikur tvö í undanúrslitum og stelpurnar þurfa á þínum stuðning að halda.
Það er grímuskylda eins og áður.
Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur, en með sigri geta stelpurnar okkar tryggt sér sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn!
Stuðningurinn á síðasta heimleik stelpnanna var flottur svo ekki sé talað um stemninguna á leiknum á Akureyri á sunnudaginn. Betur má ef duga skal, fyllum húsið af hvítum treyjum og öskrum stelpurnar inn í úrslitin!
segir í tilkynningu frá ÍBV
Forsíðumynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

