Laugardagur 17. október 2026

ÍBV hafði betur í sjö marka veislu á Hásteinsvelli – Myndir

ÍBV vann dramatískan 4–3 sigur á nýkrýndum bikarmeisturum Þróttar í Bestu deild kvenna á Hásteinsvelli í gær. Eyjakonur lentu undir en svöruðu með þremur mörkum fyrir
leikhlé og héldu út þrátt fyrir áhlaup gestanna.

Katie Cousins kom Þrótti yfir á 19. mínútu eftir hraða sókn gestanna. Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir sendi boltann fyrir markið og Cousins fylgdi vel á eftir og skoraði í autt mark.

Eyjakonur voru þó ekki lengi að svara. Ágústa María Valtýsdóttir nýtti sér mistök í vörn Þróttar, komst ein í gegn og jafnaði metin á 30. mínútu. Tíu mínútum síðar kom Olga Ševcova ÍBV yfir með laglegri vippu eftir frábæra sendingu Fridrikku Marie Clementsen.

Samvinna þeirra Ševcova og Clementsen skilaði síðan þriðja marki ÍBV í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Ševcova sendi þá boltann fyrir frá vinstri og Clementsen skoraði með glæsilegu skoti. Staðan var því 3–1 í hálfleik.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir minnkaði muninn fyrir Þrótt snemma í síðari hálfleik eftir mistök Guðnýjar Geirsdóttur í marki ÍBV. Allison Grace Lowrey endurheimti hins vegar tveggja marka forskot heimakvenna þegar hún skallaði fyrirgjöf Jessicu Jean Hinton í netið.

Björgey Njála Andreudóttir skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni undir lok leiksins og minnkaði muninn í 4–3. Jöfnunarmarkið lét þó bíða eftir sér og Eyjakonur fögnuðu dýrmætum sigri.

ÍBV er eftir sigurinn í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig en Þróttur situr í fimmta sæti með 23 stig.

Ljósmyndir: Addi London

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search