Í gær mættu ÍBV strákarnir liði Vals á Origo-vellinum að Hlíðarenda í A-deild Lengjubikarsins. Liðin skildu jöfn en lokatöluður leiksins voru 1-1.
Snemma í leiknum fékk ÍBV vítaspyrnu. Tómas Bent Magnússon fékk höfuðhögg í aðdragandanum og þurfti að fara af velli. Sito fór á punktinn en Sveinn Sigurður Jóhannesson í marki Vals varði.
Á 19. mínútu skoraði Sito fyrsta mark leiksins með skoti frá vítateig. Valur jafnaði snemma í seinni hálfleik og var það miðjumaðurinn Almarr Ormarsson sem skoraði.
Andri Rúnar Bjarnason og Guðjón Pétur Lýðsson léku ekki með ÍBV í leiknum þar sem þeir eru báðir tæpir vegna meiðsla. Hermann Hreiðarsson var í einangrun, svo hann stýrði ekki með liðinu en Dave Bell sá um það.
Eftir þrjá leiki er Valur með sjö stig á toppi riðils 1. ÍBV er með fjögur stig eftir tvo leiki. Bæði lið töpuðu sínum fyrstu stigum í mótinu í kvöld.
Valur 1 – 1 ÍBV
0-1 Sito (’19)
1-1 Almarr Ormarsson (’54)

