03.01.2021
Hin árlega dósasöfnun handknattleiksdeildar ÍBV verður á morgun, mánudaginn 4.janúar!
Okkar fólk fer af stað um klukkan 18 og er fólk hvatt til þess að setja pokana út fyrir hjá sér. Ef þú lendir í því einhverra hluta vegna að pokarnir séu ekki sóttir hjá þér getur þú haft samband við Davíð í s: 846-6510 eða Vilmar í s: 847-7567.
Við höfum fengið frábærar viðtökur við söfnuninni okkar í áraraðir og vonumst til þess að árið í ár verði engin undantekning.
Nýárskveðja,
Handknattleiksráð ÍBV!