Stelpurnar okkar unnu nú fyrir stundu síðari leikinn í einvíginu við AC PAOK og tryggðu sér sæti í næstu umferð European Cup!
Fyrri leiknum lauk með sigri PAOK 29-24 en í dag unnum við 22-29 og tryggðum okkur áfram, samtals 53-51 okkur í vil!
Magnaður sigur hjá stelpunum á virkilega sterku grísku liði!
Við erum ótrúlega stolt af stelpunum okkar og leyfum ykkur að fylgjast vel með þegar dregið verður í næstu umferð á morgun segir á facebook síðu ÍBV.
Hér er linkur á skemmtilegt video hjá þeim.

