19.11.2020
Íris Róbertsdóttir greindi frá því á bæjarráðsfundi í gær að hætt hafi verið við að halda árshátíð starfsfólks Vestmannaeyjabæjar á þessu ári.
Þess í stað hefur forstöðumönnum stofnana bæjarins verið veitt heimild til að veita starfsmönnum eins konar árshátíðarglaðning að fjárhæð 4.500 kr. fyrir hvern starfsmann.
Einnig fór Íris yfir stöðuna á stofnunum bæjarins. Vel hefur tekist að fylgja eftir hertum fjölda- og samkomutakmörkunum. Langt er síðan smit kom upp í Vestmannaeyjum. Bæjarbúar hafa sýnt þessu ástandi skilning og æðruleysi segir Íris.
Ákveðið var að setja upp jólaljósaskreytingar í bænum fyrr en ella, til þess að létta fólki lundina og lýsa upp skammdegið í þessu ástandi.
Að endingu þakkar bæjarráð þeim aðilum sem stóðu að sýningu ljósmynda í verslunargluggum bæjarins fyrir frábært frumkvæði og framkvæmdina sjálfa.