Eldheimum 5. febrúar milli kl. 18:00 og 19:30
Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður viðhorfskönnunar um þjónustu sveitarfélagsins við íbúa Vestmannaeyjabæjar.
Markmiðið er að upplýsa bæjarbúa um stöðu þjónustunnar í Vestmannaeyjum og leita eftir viðbrögðum um hvað megi betur fara og hvernig hægt er að bæta þjónustuna.
18:00 – 18:30
Kynning á þjónustukönnun Gallup – Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
18:30 – 19:30
Umræður um niðurstöður könnunarinnar og stöðu sveitarfélagsins.
Þátttakendum verður skipt í nokkra hópa eftir fjölda og umræður um einstök málefni fara fram á nokkrum borðum.
Meðal málefna verða sorpmál, skipulagsmál, skólamál, íþróttamál, umhverfismál, staða eldri borgara, barnafjölskyldna og fatlaðra, menningarmál og þjónusta starfsmanna sveitarfélagsins.
Kjörnir fulltrúar og nefndarfólk Vestmannaeyjabæjar munu dreifa sér á borðin og fylgja eftir málaflokkum sínum.
Allir velkomnir
Bætum samfélagið saman
Vestmannaeyjabær
Forsíðumyndina á snillingurinn Tói Vídó