Ian David Jeffs hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Þróttar í Reykjavík til næstu 3 ára. Skrifað var undir samning þess efnis í dag. Ian Jeffs er margreyndur þjálfari og leikmaður, hann hefur þjálfað bæði meistaraflokk karla og kvenna í efstu deild hér í Eyjum og verið aðstoðarþjálfari íslenska kvennalandsliðsins. Jeffs hefur að auki leikið yfir 270 leiki í meistaraflokki á Íslandi frá því hann kom fyrst til landsinsfrá Englandi árið 2003.
Ian Jeffs mun leiða uppbyggingu karlaliðs Þróttar sem nú leikur í 2. deild.
Miðvikudagur 7. júní 2023