Í skrapi á Gula teppinu og í Sláturhúsinu

14.08.2020

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE landaði í Vestmannaeyjum í gær og Bergey VE landaði þar í dag.

Vestmannaey var með fullfermi af ýsu, þorski og karfa en afli Bergeyjar var um 60 tonn af ýmsum tegundum.

Síldarvinnslan.is ræddi við Ragnar Waage Pálmason, skipstjóra á Bergey og spurði út í veiðiferðina. „Þetta var sannkallaður skraptúr hjá okkur en við vorum að reyna við tegundir sem eftir er að veiða á kvótaárinu.

Þetta þarf gjarnan að gera þegar sér fyrir endann á kvótaárinu. Við byrjuðum á Pétursey í leit að sólkola en þar var lítið að hafa. Þá var farið á Ingólfshöfðann og þar fékkst ýsa. Síðan var haldið á Gula teppið sunnan við Tangaflakið og þar var verið í skrapi.

Í lokin komum við svo við í Sláturhúsinu í von um að fá skarkola en árangurinn varð lítill. Í restina voru tekin þrjú hol við Ingólfshöfðann og þar fékkst blandaður afli; þorskur, koli og steinbítur. Það gengur á ýmsu í skraptúrum sem þessum,“ segir Ragnar Waage. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is