Sunnudagur 11. október 2026

Hátt þjónustustig fyrir landsbyggðina

Gólfefnabúðin er lítið fyrir-tæki í Ármúla með mikla þekkingu, vandaðar vörur frá metnaðarfullum framleiðendum og stórkostlegt vöruúrval. Þar ættu allir að finna gólfefni sem hentar þeirra þörfum og það er líka boðið upp á efni fyrir veggi. Þau leggja mikla áherslu á að þjónusta landsbyggðina vel.

Eigendur Gólfefnabúðarinnar eru Hilmar Hansson og Björgvin Hilmarsson, sem eru báðir dúkalagningameistarar með áratuga reynslu og mikla þekkingu á gólfefnum. Verslunarstjóri er Kristján Kristjánsson, sem hefur selt parket í mörg ár og er með víðtæka þekkingu á þeim vöruflokki. Gólfefnabúðin býður einnig upp á verktakaþjónustu, en starfsmenn þess geta unnið með öll efnin sem eru í boði. „Við leggjum mikið upp úr góðri þjónustu og miklum gæðum í gólfefnum og bjóðum heildarlausnir í gólfefnum fyrir heimilið og vinnustaðinn á góðum verðum,“ segir Kristján.

„Við höfum verið að senda prufur út á landsbyggðina og aðstoðað við val á gólfefni, við gerum það að sjálfsögðu án allra kvaða. Viðskiptavinir okkar eru að sjálfsögðu velkomnir í verslun okkar í Ármúla. Þar bjóðum við upp á persónulega ráðgjöf og þjónustu frá faglærðu starfsfólki og þar hafa verið sett upp sýnishorn af öllum efnum, en það er líka hægt að fá prufur til að taka með sér. Ef salan gengur í gegn þá pöntum við efnið og sendum það út á land eftir að hafa fengið tilboð í flutninginn hjá Flytjanda þar sem viðskiptavini njóta okkar afsláttarkjara. 

Ef við erum að selja niðurlímda efnið sem fer oftast á skrifstofur, verslanir og oft á heimili þá getum við líka séð um að leggja efnið líka og gerum það mjög oft. Smellta efnið er mjög einfallt í lögn og fólk leggur það oftast sjálft. Fólki á landsbyggðinni líkar þetta háa þjónustustig okkar og hefur gefið okkur góð meðmæli,“ sagði Kristján og bætti við í raun væru þau að selja efnið í heim að dyrum á landsbyggðina.

Vandað parket frá T&G Wood og fleirum

„Við erum meðal annars með parket frá T&G Wood, sem framleiðir eingöngu niðurlímt parket, en kosturinn við parketið frá T&G Wood er að efnið er litað eftir óskum viðskiptavinarins með viðarolíum. Við bjóðum líka upp á fljótandi parket frá ESTA PARKET,“ segir Kristján. „Gólfefnin okkar koma öll úr sjálfbærum skógum og þau eru mjög vinsæl hjá arkitektum um allan heim. Rubio-olían og lökkin sem við notum standast ströngustu umhverfisstaðla, en með þeim er hægt að lakka efnið þannig að það haldi náttúrulegum lit,“ segir Kristján. „Við bjóðum að sjálfsögðu allar stærðir af parketi, bæði planka í öllum breiddum, fiskabeinsmynstur í sex stærðum og parket með chevron-mynstri.“

Fallegt og hljóðlaust vínylparket

„Vínylparket er orðið vinsælasta gólfefnið á heimili og vinnustaði. Það er ótrúlega fallegt, frábært í þrifum og algerlega hljóðlaust gólfefni,“ segir Kristján. 

„Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á hágæða vínylparket frá OneFlor Europe. Parketið er með náttúrulegt útlit og fyrirtækið býður upp á mjög mikið úrval lita, ásamt því að bjóða upp á efni í öllum þykktum, bæði smellt með áföstu undirlagi og niðurlímt. Parketið er úr endurunnu efni og það er er 100% endurvinnanlegt, viðhaldsfrítt, vatnshelt og laust við þalat eiturefni. Það má líka leggja það beint yfir eldri gólfefni, sem sparar vinnu við að rífa upp og farga eldra efni og vínylparket má líka leggja beint yfir gólfhita,“ útskýrir Kristján.

Ótrúlegt úrval af hágæða veggfóðri

„Veggfóður hefur verið að koma sterkt inn undanfarin ár hjá hönnuðum og arkitektum og verður sífellt vinsælla inn á heimili. Veggfóðursframleiðendur eru farnir að nota önnur efni eins og hersía striga, hamp og bambus, silki, vínyl, og jafnvel tréþynnur og skeljar við framleiðslu á veggfóðri,“ segir Kristján. „Við völdum veggfóðrið frá ÉLITIS inn í búðina okkar, en ÉLITIS er franskt fyrirtæki sem framleiðir hágæða veggfóður þar sem hönnun, litir, form og gæði skapa einstakan heim.“

Bjóða líka harðparket og teppaflísar

„Við bjóðum svo líka upp á harðparket frá EGGER og í LONG línunni þeirra má finna breiðasta harðparketið á markaðnum. Þessir stóru og veglegu plankar fást í tíu flottum litum og eru virkilega glæsilegir,“ segir Kristján. „Við erum einnig með teppaflísar, sem er gólfefni sem hefur mjög góða hljóðvist og er því tilvalið á skrifstofur, gistiheimili og hótel. Teppaflísar er líka hentug lausn þar sem hægt er að skipta út flísum ef óhapp á sér stað.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search