Í gær voru tjaldsúlurnar reistar á tjaldborginni í Herjólfsdal, en metfjöldi umsókna var um lóðir fyrir hvít tjöld í ár.
En alls var sótt um 266 lóðir, sem eru 37 fleiri en árið 2019.
Í dag og á morgun ferja heimamenn búslóðir sínar í Hvítutjöldin.
Fimmtudagur 28. júlí 2022
11:30-15:00 Búslóðaflutningar
17:30-20:00 Búslóðaflutningar
Á öðrum timum verður Dalurinn lokaður fyrir umferð.
Föstudagur 29. júlí 2022
9:30-11:00 Búslóðaflutningar
Á öðrum timum verður Dalurinn lokaður fyirr umferð.




