Einmitt, hvers vegna kór?
Af hverju mætti ég á mína fyrstu æfingu hjá Kvennakór Vestmannaeyja?
Ég hélt að svarið væri líklega, að mér finnst gaman að syngja.
En, eftir nokkuð miklar vangaveltur varðandi þessa spurningu þá ætti spurningin kannski frekar að vera þessi.
Hvers vegna er ég enn í kór?
Og svarið þá eflaust nokkuð flóknara.
Þegar ég mætti fyrst kunni ég ekkert, og þá meina ég ekkert. Ég t.d. settist í miðjuna á salnum því að mér var sagt að ég væri miðja. En, svo söng ég bara með öllum röddunum því að ég vissi ekkert hvað ég var að gera. Hvað þá að ég vissi yfirleitt eitthvað um skiptingu radda í kórum. Og ég skildi ekkert í blöðunum með nótunum. Fyrstu blöðin eru öll útkrotuð, ég vissi ekkert hvaða nótur ég átti að merkja við. En, þetta lærðist.
Einmitt, hvers vegna kór?
Eitt af svörunum er einmitt: Til þess að læra eitthvað nýtt. Að bæta við þekkingu er aldrei slæmt. Hugsunin, “Ef aðrir geta lært þetta, þá getur þú það líka!” kom mjög oft upp.
Eitt af svörunum er einmitt: Til þess að læra eitthvað nýtt. Að bæta við þekkingu er aldrei slæmt. Hugsunin, “Ef aðrir geta lært þetta, þá getur þú það líka!” kom mjög oft upp.
En, ég komst líka að því, þegar ég fór að mæta á fleiri æfingar, að það þýðir ekkert að gefast upp. Það þarf að gefa sér tíma til að átta sig á hvernig kórstarfið virkar og til þess þarf að fara út fyrir þægindarammann og treysta á sjálfan sig og hlusta á hinar raddirnar.
Einmitt, hvers vegna kór?
Til þess að auka sjálfstraustið og ögra sér.
Til þess að auka sjálfstraustið og ögra sér.
Og, þessi kór hefur sko svo sannarlega komið með verkefni sem hafa ögrað, lög á ýmsum tungumálum, margskonar tónlistarstefnur, kóramót, stóra sviðið í Hörpu og þátttaka þjóðhátíðarlögum í Dalnum svo að eitthvað sé nefnt.
Einmitt, hver vegna kór?
Endalaust ævintýri og verkefni til að takast á við.
Endalaust ævintýri og verkefni til að takast á við.
Og eina leiðin til þess að hafa aðgang að öllum þessum frábæru ævintýrum var í samvinnu með kórsystrum. Það var enginn að fara að panta mig sóló sko (verum alveg með það á hreinu).
Og þar myndast mestu töfrarnir, þegar við náum samhljóminum. Allar raddirnar hljóma saman og maður verður þátttakandi í einhverju geggjuðu.
Einmitt, hvers vegna kór?
Samveran, og í mínu tilfelli, með konum sem ég, flestar, annars umgengst ekki neitt. Að mæta einu sinni í viku og bara syngja með öðrum, það er æði. Og svo er þetta bara svo gaman.
Samveran, og í mínu tilfelli, með konum sem ég, flestar, annars umgengst ekki neitt. Að mæta einu sinni í viku og bara syngja með öðrum, það er æði. Og svo er þetta bara svo gaman.
Og svo eru það nú víst þannig að kórsöngur hefur margvísleg jákvæð áhrif á líkamann. Eykur súrefni í blóði, eflir ónæmiskerfið og samhæfir hjartslátt og öndun milli fólks í hópnum, sem bætir bæði líkamlega og geðræna vellíðan.
Einmitt, hvers vegna kór?
Það er svo gott fyrir heilsuna.
Það er svo gott fyrir heilsuna.
Og þá er spurningin kannski bara: Af hverju ertu ekki í kór?
Kvennakór Vestmannaeyja býður öllum konum á æfingar í september.
Æfingar eru á mánudögum í sal Tónlistarskólans kl. 19:30 – 21:30
Fyrsta æfingin er mánudaginn 7. sept.
Fyrir hönd Kvennakórs Vestmannaeyja,
Anna Lilja Sigurðardóttir
Anna Lilja Sigurðardóttir



