Föstudagur 13. nóvember 2026

Hvernig væri?

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Suðurkjördæmi mun viðhafa forval um 5 efstu sætin vegna framboðslista hreyfingarinnar til Alþingis 25. september í haust

Nú þegar hefur nokkur hópur fólks ákveðið að gefa kost á sér í forvalinu bæði til 5 efstu sætanna en einnig til annarra sæta á listanum. Það sýnir að töluverður áhugi er á því að skipa sæti á framboðslistanum. Þetta er okkur í hreyfingunni mikið ánægjuefni.

Framboðsfrestur í 5 fyrstu sætin rennur út mánudaginn 8. mars og hér vil ég hvetja alla þá sem gætu haft huga á að taka þátt að bregðast skjótt við og tilkynna þátttöku í tölvupósti til kjörstjórnar í netfanginu sudur@vg.is.

Einnig er hægt að bjóða sig fram í sæti 6 – 20 og þá er hægt að stinga upp á frambjóðanda með ábendingu til kjörstjórnar, sem leitar þá eftir samþykki þeirra sem bent hefur verið á. Frestur til þessa rennur út 21. apríl.

Öll þau sem áhuga hafa á að koma hugsjónum VG um kvenfrelsi, félagslegan jöfnuð, umhverfisvernd og friðarstefnu í framkvæmd eru hvött til að gefa kost á sér og taka þátt í forvalinu sem verður rafrænt í takt við nútímann dagana 10. – 12. apríl.

Kjördæmisstjórn Suðurkjördæmis mun annast kynningu á frambjóðendum með sérstöku kynningarefni og fundum.

Til að kjósa í forvalinu þarf að:

  • Vera félagi í VG, það er gert með því að skrá sig á heimasíðu www.vg.is.
  • Til að fá að kjósa í forvalinu þarf að skrá sig fyrir 31. mars.
  • Vera með lögheimili í Suðurkjördæmi, eða skráður í VG félag í kjördæminu.
  • Eiga íslykil eða rafræn skilríki.
  • Kosið er rafrænt á heimasíðu vg.is

Allar nánari upplýsingar veita:
Sæmundur Helgason, formaður kjörnefndar í Vg-Suður í síma 894-0524
eða Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Vg í síma 896-1222

Við hér í VG Vestmannaeyjum erum einnig að sjálfsögðu tilbúin að gefa allar nánari upplýsingar um forvalið og hreyfinguna.

Hvernig væri að gerast svolítið Vinstri- græn?

Bestu kveðjur
Ragnar Óskarsson
formaður VG í Vestmannaeyjum

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search