Frá og með 1. október nk. verður hægt að veita umboð vegna afhendingar lyfja rafrænt í gegnum Heilsuveru. Frá sama tíma þarf sá sem sækir lyf fyrir annan en sjálfan sig að hafa til þess umboð.
Meira öryggi fylgir því að veita umboð með rafrænum hætti en á pappír, enda er krafist auðkenningar með rafrænum skilríkjum inn í Heilsuveru. Rafræna umboðið verður gilt í öllum apótekum, sé það skráð í Heilsuveru.
Þar sem um viðamiklar breytingar á hugbúnaðarkerfum apóteka er að ræða má búast við einhverjum hnökrum allra fyrst í innleiðingu rafrænna umboða en frá miðjum októbermánuði ætti ferlið að ganga snurðulaust fyrir sig.
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir lyfjafræðingur hjá Apótekaranum hér í Eyjum ákvað að skella í kennslumyndband, hvernig sækja skal um lyfjaumboð inn á heilsuvera.is
Frekar upplýsingar um lyfjaumboð er hægt að nálgast með því að smella HÉR!