Niðurstaða Hafrannsóknastofnunar á yfirstandandi loðnuleit, sem er rétt ólokið, er að minna sést af loðnu nú en fyrr í febrúar. Þessi niðurstaða er sett fram með þeim fyrirvara að smá svæði er eftir ókannað og um frumúrvinnsla á gögnum er að ræða.
Loðnumælingar rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar og fimm uppsjávarveiðiskipa, Heimaeyjar VE, Hákons EA, Aðalsteins Jónssonar SU, Barkar NK og Polar Amaroq, kláruðust nokkurn vegin í nótt. Einungis lítið svæði út af Húnaflóa er óyfirfarið og mun Árni Friðriksson klára það þegar veður leyfir aftur.
Þetta kemur fram í stuttri frétt á vef Hafrannsóknastofnunar sem birtist í morgun.
„Endanlegar niðurstöður þessara mælinga liggja því ekki fyrir en vegna þeirra hagsmuna sem eru í húfi telur Hafrannsóknastofnun rétt að upplýsa nú að magn hrygningarloðnu er vel undir síðustu mælingu sem framkvæmd var í byrjun febrúar. Þessi niðurstaða er með þeim fyrirvara að smá svæði er eftir og þetta er frumúrvinnsla á gögnum en það eru taldar hverfandi líkur á að niðurstaðan breytist verulega hér eftir,“ segir í frétt Hafrannsóknastofnunar og því bætt við að frekari úrvinnsla mun fara fram á næstu dögum þegar Árni lýkur yfirferð sinni og að því loknu verður greint frá endanlegum niðurstöðum.