Líkt og hjá karlaliðinu er einnig nýr þjálfari í brúnni hjá stelpunum. Jonathan Glenn var ráðinn þjálfari meistaraflokks ÍBV kvenna í lok síðasta árs. Glenn kom fyrst til Eyja 2014. Það tímabil skoraði hann 12 mörk í efstu deild. Eftir að hafa söðlað um kom Glenn aftur til ÍBV 2019 og lagði svo skóna á hilluna ári síðar. Glenn þekkir Eyjarnar vel og hefur komið vel inn í þjálfun hjá yngri flokkum ÍBV.
Aðspurður um undirbúningstímabilið hafa gengið vel. Það hafa verið miklar breytingar á hópnum frá síðustu leiktíð, bæði á starfsfólki og leikmannahópnum. „Megináherslan á undirbúningstímabilinu hefur því verið að finna leikstíl sem hentar hópnum,“ sagði Glenn í spalli við Tígul. „Við höfum nú fundið þennan stíl og hefur frammistaða liðsins verið mjög jákvæð. Þetta er eitthvað sem höldum áfram að bæta og byggja á.“
Líkt og hjá körlunum er nýtt fyrirkomulag á deildinni í ár, sem ber nafnið Besta deildin. Leikið verður í tveimur hlutum. Í fyrri hluta verði leikin tvöföld umferð þar sem hvert lið leikur tvo leiki gegn hverju hinna liðanna, heima og heiman og í síðari hluta verði leikin einföld umferð á milli efstu sex liðanna og svo neðstu sex liðanna. Aðspurður um hvernig sumarið leggst í hann sagðist Glenn spenntur og hæfilega bjartsýnn. „Við vitum hins vegar að hver einasti leikur verður krefjandi og við verðum að mæta vel undirbúin til leiks.“
Jákvæð tign á lofti
Varðandi leikmanna hópinn sagði Glenn nokkra leikmenn enn vera að jafna sig eftir Covid og flensuna sem nú herjar á. „Hanna er einnig á skjótar bata vegi eftir aðgerð en við mátti búast, sem eru mjög góðar fréttir. Við höfum verið mjög heppin að hafa ekki lent í neinum alvarlegum áföllum (sjö, níu, þrettán) þar sem er ekkert með alltof stóran leikmannahóp,“ sagði Glenn. Þá sagði hann móralinn innan liðsins góðan og alla spennta fyrir komandi sumri. „Við höfum verið að skora á yngri leikmenn að bæta sig og sína vinnusemi á æfingum. Þannig vinni þær sér inn sæti í meistaraflokkshópnum.“ Glenn sagðist sjá margar efnilegar stelpur sem gætu fengið tækifærið í sumar. „Telma hefur til að mynda risið undanfarið og tekið miklum framförum. Hún hefur sýnt vilja til að taka aukaæfingar og vilja til að læra sem er mjög jákvætt inní framtíðina.“
Aðspurður sagðist Glenn ánægður með þá leikmenn sem hann hefur yfir að ráða. „Okkur vantar hins vegar aðeins meiri dýpt í sumum stöðum svo vonandi finnum við einn eða tvo leikmenn í viðbót sem passa vel í hópinn,“ sagði Glenn. Að lokum vildi Glenn hvetja Eyjamenn til að styðja vel við bakið á ÍBV í sumar. „Við viljum setja fram lið
sem Eyjamenn geta verðið stoltir af. Lið sem er vinnusamt og spilar stolt undir merkjum ÍBV.
Ykkar stuðningur er gríðarmikilvægur og getum við ekki beðið eftir að sjá ykkur öll á Hásteinsvelli í sumar,“
sagði Jonathan Glenn að lokum. „Áfram ÍBV!“
Farnar: DB Pridham, Lianna, Auður, Annie, Clara, Eliza, Siri, Kristina Erman, Kristijana.
Komnar: Haley, Ameera, Sydney, Sandra, Þorhildur, Kristin Erna, Lavinia.

