15.03.2020
Veistu af áhugaverðum þróunar– og nýbreytniverkefnum í GRV, leikskólum, Tónlistarskóla eða Frístund sem þú vilt vekja athygli á? Fræðsluráð Vestmannaeyja auglýsir, í fyrsta skipti, eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna fræðsluráðs 2020.
Hægt er að tilnefna kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, GRV, Tónlistarskóla Vm. og Frístund.
Allir geta tilnefnt verkefni til verðlaunanna; s.s. foreldrar, ömmur og afar, nemendur, stofnanir, samtök, starfsfólk Vestmannaeyjabæjar, þ.m.t. starfsfólk í leikskólum, grunnskóla, Tónlistarskóla og Frístund.
Valin verða þrjú verkefni sem fá verðlaun og eru það verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 18. maí nk.
Með því að smella þetta eyðublað til að tilnefna.
Vestmannaeyjabær fjölskyldu– og fræðslusvið
Forsíðumynd Halldór Ben