Þriðjudagur 26. september 2023
Jóhanna Ýr

Hvatning til ríkisstjórnar

Á bæjarstjórnarfundi Hveragerðisbæjar 9. febrúar síðastliðinn lagði bæjarstjórnin fram eftirfarandi áskorun til ríkisstjórnarinnar:

,,Bæjarstjórn Hveragerðis skorar á ríkisstjórnina að veita auknu fjármagni til Vegagerðarinnar vegna snjómoksturs á Hellisheiði til að tryggja betri samgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og Suðurlandsundirlendis. Tryggja þarf öryggi vegfarenda, tryggja þarf greiðar samgöngur vegna sjúkraflutninga sem og aðgengi íbúa á Suðurlandi við höfuðborgarsvæðið þar sem fjöldi Sunnlendinga stundar sína atvinnu. Einnig skorar bæjarstjórn Hveragerðisbæjar á ríkisstjórnina að huga að framtíðarlausnum, á þessum fjölfarnasta vegkafla landsins, til að bæta megi
umferðaröryggi."

Ég hef nú sent áskorunina á þingmenn Framsóknar í kjördæminu og hvetjum við þau til dáða að fylgja þessu máli eftir með það fyrir augum hvernig best megi mæta öfgum í veðri og fyrirbyggja ferðatafir þar sem vitað er að álagspunktar eru. Veitum bestu vetrarþjónustu sem völ er á og tryggjum hæsta þjónustustig fyrir alla vegfarendur.

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,
forseti bæjarstjórnar og oddviti Framsóknar í Hveragerði

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is