
Nafn: Hákon Þór Tómasson
Foreldrar: Brynja Rut Halldórsdóttir og Tómas Ísleifsson
Þekkir þú einhverja sjómenn? Umm Magga afa, Rikka pabba og pabba hans Fannars Inga.
Hefur þú farið á sjó? Já ég hef tvisvar farið á sjó með Rikka
Borðar þú fisk? Já
Hvað gera sjómenn? Veiða fisk og borða fisk og sum kex
Veistu hvað fiskarnir heita? Ýsa

Nafn: Sunna Karen Birkisdóttir
Aldur: 5 ára
Foreldrar: Lísa Margrét Þorvaldsdóttir og Birkir Ingason
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já ég þekki pabba og Baldvin og afa Inga.
Hefur þú farið á sjó? Já, í veislunni í bátnum hans pabba.
Borðar þú fisk? Já, mér finnst hann pínu góður.
Hvað gera sjómenn? Veiða fisk og síld. Þeir stýra og finna nokkra fiska.
Veistu hvað fiskarnir heita? Já, einn heitir Ýsa, einn heitir Þorskur og Síld og Loðnur. Svo heitir einn Steinbítur.

Nafn: Sigurður Andrason
Aldur: 5.ára
Foreldrar: Thelma Sigurðardóttir og Andri Ólafsson
Þekkir þú einhverja sjómenn? Já Sigga afa
Hefur þú farið á sjó? Já á Dísu og Bjartmar
Borðar þú fisk ? Já alla fiska
Hvað gera sjómenn? Veiða fisk
Veistu hvað fiskarnir heita ? Já Lax, Humar og Rækja… nei annars Rækja er ekki fiskur.

