Þriðjudagur 10. nóvember 2026

Hvað gerðir þú í vetrarfríinu?

Við fengum að forvitnast hvað nokkrir af nemendum framhaldsskólans hafi eytt vetrarfríinu sínu í.

Inga Dan

Ég gerði nú ekkert spennandi þar sem ég var lasin í fríinu. Eða jú, ég vann tvo daga á leikskólanum Sóla og svo varð ég veik. 

 

Kári Steinn

v

Ég var uppi á landi í ökuskóla 3 og horfði á Níu Líf. Svo fór ég bara til Vestmannaeyja og var að plana að gera eitthvað business með hljómsveitinni minni Hrossasauðir. Svo var ég að plana að búa til bíómynd og horfa á Dahmer og byrjaði að horfa á Saul – eða Better Call Saul. Það var gott að fá smá frí en maður verður leiður á því eftir smá stund. Alltaf gott að koma aftur í skólann til að narta í Aroni og bullshitta.

 

Aron Stefán

Ég var að vinna og pantaði mér flug til Prag á tónleika með Blink 182. Ég fer í september á næsta ári þannig það er alveg langt í þá. Jón Grétar og Skírnir Freyr koma með mér. Það er nauðsynlegt að fá smá frí frá skólanum en líka gott að vera mættur aftur til að narta í Kára og bullshitta. 

 

Hafdís Björk

Ég fór til Reykjavíkur í vetrafríinu í tvítugsafmæli hjá bestu vinkonu minni. Við sungum karaoke með fjölskyldunni hennar og djömmuðum smá. Ég fór líka á stefnumót með kærastanum mínum til að fagna tveimur árum saman. Við fórum á sushi veitingastað og áttum æðislegt kvöld og eyddum síðan restina af kvöldinu með vinum okkar sem eiga heima í bænum. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search