01.01.2021
Gleðilegt og kærleiksríkt komandi ár !
Tígull óskar ykkur gleði og hamingju á nýju ári. Við þökkum fyrir alla innsendu greinarnar og allar ábendingar sem gerðu Tígul enn skemmtilegri.
Við þökkum auglýsendum okkar, án ykkar yrði þetta frekar erfitt.
Uppfærsla á Tígull.is
Fyrstu dagar þessa nýja árs fara í að uppfæra Tígull.is en það var löngu kominn tími á smá uppfærslu og ponsu litlar breytingar í leiðinni. En það er dálítið erfitt að finna rétta tíman til að pása að setja inn fréttir og upplýsingar en þetta verður víst að hafa sinn gang og mun vera gert á næstu dögum.
Fyrsta blað Tíguls 2021
Við erum komnar á fullt að setja saman fyrsta blað ársins sem mun koma út 20.janúar en skil á auglýsingum og greinum er þá helst í vikunni á undan 11.-15. janúar en allra síðasti skiladagur er mánudagurinn 18.janúar.
Við stefnum á að halda útgáfunni áfram óbreyttri
Stefnum á að gefa út eitt blað vikulega við vonum að fyrirtæki sjái sér fært um að vera með okkur áfram og láta vita af sér á Eyjunni okkar svo að við getum haldið útgáfunni áfram. Því með ykkar hjálp er þessi litla útgáfa möguleg. Alveg eins og veitingastaðirnir á eyjunni eru til vegna þess að við sækjum þá, fallegu verslanirnar okkar eru til af því að við verslum við þær.
Þetta er ekki flókið elsku vinir – hlökkum til að takast á við árið 2021 með ykkur.
Kata Laufey
Ritsjóri Tiguls
Hér fyrir neðan er myndband frá Halldóri B. Halldórssyni en hann fór í morgungöngu á fyrsta degi ársins.