Föstudagur 16. október 2026

Hvað er ábyrg fjármálastjórn?

Lögbundin skylda sveitarfélaga

Lögbundin skylda sveitarfélaga er að sinna þjónustu við íbúa og nýta tekjustofna til þess. Vestmannaeyjabæ hefur tekist vel til við þær skuldbindingar allt kjörtímabilið og jafnframt skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu öll fjögur árin. 

Reksturinn er góður

Síðustu ár hafa verið Vestmannaeyjabæ erfið vegna loðnubrests í tvö ár, ofan á covid-faraldurinn. Þetta tvennt  hefur haft mikil áhrif á afkomu bæjarins. Þrátt fyrir þessa erfiðleika náðist að reka bæinn með afgangi og brugðist var við vandanum með mótvægisaðgerðum til að hjól atvinnulífsins stöðvuðust ekki.

Markmið okkar hefur verið að veita íbúum góða þjónustu og hefur það tekist vel. Þegar við tókum við árið 2018 mátti margt bæta í þjónustunni, m.a. í stoðkerfi og aðbúnaði skólanna. Að okkar mati voru leik- og grunnskólarnir og stoðkerfið í kringum þá í svelti og við því brugðumst við.

Bætt þjónusta

Þrátt fyrir öll þessi áföll þá gátum við m.a. farið í spjaldtölvuvæðingu grunnskólanna, frystingu leikskólagjalda sem gerðu þau samkeppnishæf við það sem tíðkaðist annars staðar. Árið 2017 voru leikskólagjöld þau hæstu á öllu landinu, en nú erum við í 7. sæti. Sömuleiðis lækkuðum við fasteignaprósentuna þrisvar sinnum á íbúðarhúsnæði og tvisvar sinnum á atvinnuhúsnæði. Þetta gerði það að verkum að fasteignaskattur hækkaði ekki hér í Eyjum upp úr öllu valdi því fasteignaverð hér hefur hækkað mikið, sem er vel. Við höfum lagt okkur fram við að lækka álögur á íbúa en jafnframt veitt betri þjónustu. Til þess að hægt sé að veita góða þjónustu þurfa innviðir að vera í lagi.

Uppbygging innviða

Sjóðir sveitarfélagsins hafa verið sterkir eftir sölu á HS veitum árið 2007. Á þessu kjörtímabili hafa að hluta til fjármunir úr þessum sjóðum verið notaðir til fjárfestinga. Búið er að byggja þjónustukjarna fyrir fatlað fólk, nýja og glæsilega slökkvistöð, stórbætta aðstöðu og búningsklefa við Hásteinsvöll, endurbæta skólalóðir, byggja upp leikvelli í hverfum og mjög margt annað hefur verið byggt upp og bætt, enda uppsöfnuð þörf fyrir hendi.   

 Á síðustu kjörtímabilum hefur ekki verið lögð nógu mikil áhersla á uppbyggingu innviða og viðhald eigna. Á þessu kjörtímabili höfum við stigið fast til jarðar varðandi viðhald eigna en gera þarf enn betur, sérstaklega varðandi íþróttamiðstöðina. 

Myndin sýnir hækkun fastafjármuna (innviða) í millljónum króna frá 2014-2021.

Mikilvægt er að rugla því ekki saman að nota sjóði sveitarfélagsins til að standa undir rekstri, sem ALDREI hefur verið gert á kjörtímabilinu, og því að breyta peningalegum eignum í innviði til þess m.a. að styrkja framtíðartekjuöflun. Við  teljum eðlilegt að nýta sjóði sveitarfélagsins, hóflega, til að byggja upp innviði. Aldrei hefur uppbyggingin verið meiri. Fjárfestingar á árunum 2018 – 2021 hafa verið tæpir 4 milljarðar á móti tæpum 2 milljörðum árin 2014-2017, undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. 

Myndin sýnir fjárfestingar (uppbyggingu innviða) og stöðu á handbæru fé (peningalega eignir í sjóðum)

 

Hvað er ábyrg fjármálastjórn?

Við höfum með ábyrgum rekstri og vilja til að veita góða þjónustu skapað grundvöll fyrir mun betri lífsgæðum bæjarbúa á þessu kjörtímabili. Höldum áfram á þeirri braut. Skilum jákvæðum rekstrarafgangi en byggjum líka upp. Það er mikilvægt að íbúarnir sjálfir njóti góðrar stöðu sveitarfélagsins. Það er ábyrg fjármálastjórn!

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri

Höfundur skipar 3. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, varaformaður bæjarráðs

Höfundur skipar 2. sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search