Humarrúllur
Hráefni:
Franskbrauð
Smjör 300 g
Steinselja 1 poki
Hvítlaukur 1stk.
Humarhalar 800 g
Sítrónupipar
Aðferð:
Franskbrauð, skorpur skornar af og brauðið flatt út með kökukefli.
Smjörið, steinseljan og hvítlaukurinn (kraminn) og sett í pott þar til smjörið hefur bráðnað.
Humar settur á brauðið, kryddað með sítrónupipar og rúllað upp.
Brauðinu er svo dýft í smjörið, á bökunarplötu og inn í ofn á 180 gráður í ca. 10 mínútur.
Borið fram með hvítlaukssósu og salati, tilvalið sem forréttur yfir hátíðina.
Amaretto jólaís
Hráefni:
Eggjarauður 6 stk.
Flórsykur 6 msk.
Vanilludropar 1 tsk.
Amarettólíkjör 3 msk.
Kaffiduft 1 msk.
Rjómi 0,5L
Súkkulaðispænir 150 g
Möndluflögur 50 g
Aðferð:
Eggjarauðum og flórsykri hrært vel saman.
Kaffidufti leyst upp í líkjör og vinulludropar settir með. Stífþeyta rjóma. Öllu blandað varlega saman. Súkkulaðispænunum og möndluflögunum bætt við í lokin.