Miðvikudagur 6. desember 2023
handbolti

HSÍ l Fjölliðamótum yngri flokka frestað

12.03.2020 kl 11:20

Í gær fundaði HSÍ með ÍSÍ og öðrum sérsamböndum eins og hafði verið ákveðið á fundi sambandanna á mánudag með almannavörnum. Í dag er enn óbreytt staða frá yfirvöldum þ.e. að ekki er um að ræða samkomubann. HSÍ mun almennt fara eftir þeim tilmælum og munu allir leikir fara fram skv. leikjadagskrá þar til annað verður tilkynnt.

Hins vegar hefur HSÍ verið í nánu sambandi við þau félög sem fyrirhuguðu að halda fjölliðamót á næstu 2 vikur. Ljóst er að þegar hafa borist afboðanir þátttakenda og sjálfboðaliða og því erfitt fyrir umrædd félög að fullnægja þeim skilyrðum sem sett hafa verið af hálfu almannavarna til skipuleggjenda viðburða. Í þessu ljósi hefur HSÍ ákveðið að fresta öllum fjölliðamótum á vegum HSÍ næstu tvær vikur. Þetta á því við um eftirfarandi mót:

FH                          5. fl. kvenna eldri             13-15. mars
KR                          5. fl. karla eldri                  13-15. Mars
Fram                     6. fl. karla eldri                  13-15. mars
Víkingur               6. fl. kvenna eldri             13-15. mars
Stjarnan              5. fl. karla yngri                 20-23. mars
ÍBV                        5. fl. kvenna yngri            20-23. mars
Fjölnir                   6. fl. karla yngri                 20-23. mars
HK                          6. fl. kvenna yngri            20-23. mars

HSÍ mun tilkynna sérstaklega um framhaldið hjá þessum flokkum. Ítrekað er að aðrir leikir í öðrum flokkum og keppnum fara fram skv. leikjadagskrá en staðan hvað það varðar verður metin daglega og allar ákvarðanir tilkynntar hlutaðeigandi aðilum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is