Það var líf og fjör á Bókasafni Vestmannaeyja í gær, laugardaginn 31. október, þegar safnið bauð upp á hrekkjavökufjör sem hluta af dagskrá Safnahelgarinnar. Dagskráin stóð frá kl. 12 til 15.
Bókasafnið hafði tekið á sig hræðilega mynd í tilefni dagsins og þar var meðal annars búið að setja upp völundarhús sem gestir reyndu að rata í gegnum.
Kl. 13 hófst sögustund í myrkri þar sem lesið var upp í dularfullri stemningu, og gestir voru hvattir til að taka með sér vasaljós.
Addi London, ljósmyndari Tíguls, leit við á bókasafninu og myndaði gleðina. Myndirnar má sjá hér að neðan.
























