Mánudagur 25. september 2023
Þjóðhátíð Gunnar Ingi

Hreimur með þjóðhátíðarlagið í ár – Göngum í takt

Höfundur og flytjandi Þjóðhátíðarlags Vestmannaeyja árið 2021 er Hreimur Örn Heimisson

Lagið ber heitið „Göngum í takt“ og fjallar um eftirvæntinguna sem að kraumar inn í manni þegar að maður er að labba niður í dal, gegnum hliðið og heyrir í drununum úr brekkunni þegar þúsundir fólks hafa þjappað sér saman og hátíðin er byrjuð. Hreimur fékk Vigni Snæ Vigfússon með sér í að pródúsera lagið. Magni, sem að söng með Hreim árið 2001 í Þjóðhátíðarlaginu Lífið er yndislegt, verður einnig með að þessu sinni ásamt Emblu Margréti 16 ára dóttur Hreims sem að syngur einnig í laginu.

Fleiri koma að laginu. Benedikt Brynleifsson spilar á trommur, Matthías Stefánsson spilar á fiðlu, Pálmi Sigurhjartarson spilar á harmonikku og Árni Þór Guðjónsson, Steini Bjarka, Benedikt Brynleifs og Vignir Snær mynda kórinn

Lag & Texti : Hreimur Örn Heimisson / meðfylgjandi er textinn við lagið svo fólk geti byrjað að læra textann fyrir hátíðina.

Lagið kemur inn á Spotify & verður frumflutt á útvarpsstöðvum landsins föstudaginn 28.maí.

Miðasala á Þjóðhátíð í Eyjum hefst miðvikudaginn 26.maí á dalurinn.is

Texti:

Allir í bátana yfir á eyjuna förum í ferðalag

Ég vona að ég hitti þig, hátt upp í brekkunni

Við sitjum hlið við hlið.

 

Þegar eldar lýsa upp ský

Við erum komin saman á ný

Og Þessi hátíð byrjar upp á nýtt

 

Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar

Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar

Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar

Syngjum saman öll, göngum í takt og búum til minningar

 

Við sitjum á sama stað, horfum á brennuna, fuðra upp í nóttna

Svo syngjum við söngvana, kannski missum við röddina

En öllum er sama um það

 

Og þega eldar lýsa upp ský

Við erum komin saman á ný

Þessi hátíð byrjar upp á nýtt

 

Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar

Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar

Við förum inn í dal, við hittum ykkur þar

Syngjum saman öll, göngum í takt og búum okkur til minningar

 

Við komum alltaf aftur, Herjólfsdalur heilsar okkur

Við tökum höndum saman

Við erum Þjóðhátíð !!!

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is