Sunnudagur 11. október 2026

Hörkuveiði hjá Vestmannaey

Síðasta vika var góð hjá Vestmannaey VE. Skipið landaði fullfermi í Eyjum síðast liðin sunnudag og aftur í gær

Birgir Þór Sverrisson skipstjóri er ánægður með árangurinn. „Þetta var bara þrusuvika hjá okkur og við getum ekki kvartað. Í báðum túrunum tókum við sama veiðirúntinn. Það var Víkin, Höfðinn og Mýragrunn. Aflinn var blandaður. Þorskur hafði vinninginn í fyrri túrnum en ýsan í þeim síðari. Veðrið var ekkert sérstakt og það er varla hægt að tala um sumarveður. Við fengum bæði norðan- og vestanbrælu. Nú styttist í slipp hjá okkur og þá munu menn njóta frísins. Við förum í slipp eftir um það bil hálfan mánuð,“ segir Birgir í samtali við vefstjóra síldarvinnslunnar.

Bergur VE (áður Bergey VE) heldur frá Reykjavík í dag áleiðis til Eyja. Skipið hefur verið í slipp í Reykjavík að undanförnu þar sem meðal annars var skipt um nafn á því. Gert er ráð fyrir að Bergur haldi til veiða síðdegis á morgun.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search