Knattspyrnudeild ÍBV stóð fyrir frábæru árgangamóti í dag í Herjólfshöll. Alls tóku átta lið þátt.
Árgangar sem tóku þátt voru: ´72, ’74, (´77,’78 og ’79 voru saman með lið,) ’80, ’81, ’82, ’83, og ’88. Þegar Tígull mætti á svæðið var úrslita leikurinn að hefjast á milli árgangs ’83 og ’77-’79 Það var að lokum eftir hörku spennandi leik að sameiginlegt lið ’77 – ’79 hafði betur og sigraði árgang ’83 með einu marki. Það skemmtu sér allir ljómandi vel og ótrúlegt en satt þá slasaðist engin alvarlega því það vill oft verð raunin þegar “gamlar” fótbolta hetjur koma saman í leik, þó var einn snúinn ökli og nokkrir aumir nárar hér og þar. Tígull smelti nokkrum myndum af leikmönnum.