Sunnudagur 18. október 2026

Hollvinasamtök Hraunbúða

Hollvinasamtök Hraunbúða voru stofnuð 16. febrúar 2017. Tilgangur félagsins er að bæta aðstöðu og upplifun heimilisfólk á Hraunbúðum, því líðan okkar besta fólks skiptir mjög miklu máli.

„Við höfum gert margt á þessum 5 árum. Fastir viðburðir hjá okkur á ári hverju eru vorhátið, páskabingó, þrettánda kaffi, og sunnudagsbíltúrar. Við höfum nýtt styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum til að kaupa tól og tæki til að bæta aðstöðu heimilisfólks. Má þar nefna hjólastóla, nokkrar loftdýnur, lífsmarkamæli, tæki til að taka hjartalínurit, fullkominn nuddstól, hreyfiskynjara inná hvert herbergi, nokkrar spjaldtölvur og heyrnatól, nýtt sjónvarpskerfi sem skilaði mun betri myndgæðum fyrir heimilisfólk, gasgrill, Bose hátalarakerfi í sal, svo eitthvað sé nefnt. Svo innréttuðum við einnig aðstandendaherbergi og hvíldarherbergi. Þá hefur verið boðið upp á tónleika af ýmsu tagi, jólahlaðborð og við höfum boðið heimilisfólki upp á stóla yoga. Þá keyptum við dýr með skynjara sem bregðast við tali. Allt gert með það í huga, eins og áður sagði, að bæta líðan og upplifun heimilisfólks,“ sagði Halldóra Ágústsdóttir formaður Hollvinasamtaka Hraunbúða.

“Við viljum nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem styrkt hafa samtökin með árlegum framlögum og eða ánafnað okkur. Þetta er okkur gríðarlega mikilvægt og í raun forsenda starfsins. Þannig að við viljum bara minna á að hægt er að hafa samband við okkur til dæmis á Facebook, til að gerast Hollvinur Hraunbúða og þannig stuðla að áframhaldandi bættri aðstöðu, okkar besta fóllki til heilla í framtíðinni.“

Fyrir þá sem vilja styðja samtökin er tekið við framlögum á reikningi: 582-26-200200, kt. 420317-0770.

 

 

Á dögunum fengu samtökin myndarlegt fjárframlag frá ættingjum Valda Jónssonar.
Vildu samtökin koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search