Karamellusúkkulaði
Hráefni:
22-25 stórar döðlur, mjúkar og steinlausar
69 ml kókosolía ( hituð þar til fljótandi )
2 msk möndlusmjör eða hnetusmjör
2 tsk manilludropar
¼ tsk sjávarsalt
20-50 g kókosmjöl
Súkkulaðihjúpur
Hráefni:
30 g kakó
60 ml kókosolía
2 msk hlynsýróp
Aðferð:
Setja döðlur, kókosolíu, möndlusmör/hnetur, vanilludropa og sjávarsalt í matvinnsluvél og maukið vel saman í um það bil 1-2 mínútur eða þar til karamella hefur myndast.
Setjið karamelluna í skál og blandið kókosmjöli saman við. Magn eftir smekk.
Mótið karmelluna í litla bita og látið á smjörpappír. Frystið í um 20 mínútúr.
Gerið súkkulaðihjúpinn með því að setja kakóduft, kókosolíu og hlynsýróp saman í skál og hræra vel saman.
Dýfið því næst karmellubitunum ofan í súkkulaðið og setjið á smjörpappír.
Látið í frysti í um 15 mínútur áður
en þið gæðið ykkur á þessari dásemd.
Geymið bitana í kæli eða fyrsti.