Laugardagur 17. október 2026

Hollar nammidöðlur

Það er svo gott að geta gripið í sætindi í hollari kantinum þegar sætindaþörfin kallar. Hér eru á ferðinni guðdómlega mjúkar döðlur fylltar með hnetusmjöri og stökkri möndlu, nammi namm!

Gott að nota ferskar Mazafati döðlur að þessu sinni en þær eru ekki mjög stórar en svo mjúkar og djúsí. Þær voru til í Krónunni í Krónumerktum umbúðum. Hægt er að sjálfsögðu notað þær döðlur sem ykkur þykja bestar.

Hráefni:

30 stk. ferskar döðlur

Um 180 g gróft hnetusmjör

30 stk. Til hamingju möndlur í hýði

80 g dökkt súkkulaði

Saxaðar Til hamingju pistasíuhnetur

Saxaðar Til hamingju möndlur í hýði

Til hamingju gróft kókosmjöl

Aðferð:

Byrjið á því að skera rauf í döðlurnar og fjarlægja steininn.

Hrærið hnetusmjörið upp og skiptið á milli daðlanna. Gott er að nota sprautupoka en klippa ágætlega stórt gat á endann.

Stingið næst einni möndlu ofan í hnetusmjörið á hverri döðlu, allt í lagi þó það sjáist í möndluna, bara að hún festist.

Stingið í frysti á meðan annað er undirbúið.

Saxið niður pistasíuhnetur og möndlur og bræðið dökka súkkulaðið.

Takið döðlurnar úr frystinum, rennið súkkulaði yfir þær og stráið næst söxuðum hnetum, möndlum og kókosmjöli yfir þær til skiptis.

Geymið í kæli eða frysti og njótið þegar sætindaþörfin kallar.

        Uppskrift fengin frá gotteri.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search