Hráefni:
Góð olía til steikingar
1 laukur
100 g sæt kartafla, skræld
100 g sellerírót, skræld
2 msk tómatmauk
1 msk timjan
1 msk karrý
chilli af hnífsoddi
hálf msk sjávarsalt eða Herbamare
100 g soðnar og skrældar kartöflur
150 g soðin hýðisgrjón
100 g kasjúhnetur
100 g heslihnetur
Raspur: 50 g sesamfræ
Aðferð:
Saxið laukinn og rífa niður sætu kartöfluna og sellerírótina. Steikið á pönnu ásamt tómatmauki og kryddi, látið malla í 20 mín. Leyfið að kólna. Ristið og malið hneturnar. Stappið kartöflurnar saman við hýðisgrjónin, bætið síðan við tómatblöndunni af pönnunni og hnetunum. Hrærið vel saman. Hægt er að nota hrærivél eða handaflið og nota víða og góða skál.
Því næst þarf að móta hleif úr deiginu. Sturta deiginu í form og nota það til að hjálpa við að forma hleifinn, en síðan kippa hleifinum upp úr forminu og baka á bökunarpappír.
Veltið hleifinum upp úr sesamfræjum til að mynda rasp. Bakið við 200°C í 30-40 mínútur, passið að hafa hleifinn ekki of lengi í ofninum svo hann þorni ekki.
Það sem er gott við hnetusteikina er að hægt er að útbúa hana tímanlega og frysta.
Hugmynd að meðlæti með hnetusteikinni: Brúnaðar kartöflur, sveppasósa, rauðkál og grænum baunum. Einnig er gott að hafa Waldorf salat, sætkartöflumús eða ferskt gulrótasalat.