Mánudagur 9. nóvember 2026

Hlýtt og vætusamt í Eyjum næstu daga

Hlý sunnanátt leikur um landið í dag og á morgun og Eyjamenn mega búast við súld eða rigningu með köflum. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands er það lægð yfir suðurhluta Grænlands og hæð við Bretlandseyjar sem beina hlýju lofti til landsins og það hlýnar smám saman.

Hlýjast fyrir austan

Í dag er spáð sunnan 8 til 15 metrum á sekúndu og hita á bilinu 7 til 14 stig. Hlýjast verður á Austurlandi þar sem hitinn gæti farið upp í 15 stig. Sunnan- og vestanlands, og þar með í Eyjum, verður skýjað með súld eða rigningu með köflum en þurrt að mestu annars staðar á landinu.

Hvessir á þriðjudag

Á morgun, þriðjudag, bætir í vindinn og spáð er sunnan 10 til 18 metrum á sekúndu með rigningu eða súld. Áfram verður hlýtt en síðdegis snýst vindur í hægari vestanátt vestanlands, það dregur úr vætunni og kólnar. Þeir sem eiga ferð með Herjólfi ættu að fylgjast með tilkynningum.

Kólnar í miðri viku

Á miðvikudag er spáð suðvestan 5 til 13 metrum á sekúndu, skúrum á víð og dreif og hita á bilinu 1 til 8 stig. Á fimmtudag hlýnar aftur með suðlægri átt og rigningu eða súld með köflum sunnanlands.

Mynd: Addi London

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search