Evrópumótið í víðvangshlaupum fer fram í dag, sunnudaginn 8. desember í Portúgal. Alls eru keppendur á mótinu 602 talsins frá 40 löndum og eiga Íslendingar einn fulltrúa já og þar með við Vestmannaeyingar. Hlynur Andrésson keppir fyrir Íslands hönd. Hann hefur keppni klukkan 12:35 og mun hlaupa 10.225 metra.
Hlynur Andrésson er einn fremsti frjálsíþróttamaður Íslands og á þónokkur Íslandsmet allt frá því að hafa hlaupið hraðasta 1500 metra hlaupið með rafrænni tímatöku upp í það að eiga Íslandsmetið í 10 km hlaupi. Hann hefur mikla alþjóðlega keppnisreynslu og keppti hann nú síðast fyrir fjórum vikum á Norðurlandamótinu í víðvangshlaupum þar sem hann vann sér inn silfurverðlaun.
Hægt er að horfa á í beinni hér kl 12:35
Hér verður hægt að sjá úrslit frá mótinu og frekari upplýsingar
Greint er frá á vef fri.is