Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson setti enn einu sinni Íslandsmet í gærkvöldi þegar hann keppti í 3.000 metra hlaupi í Jessheim í Noregi.
Hlynur hljóp á 7:54,72 mínútum og bætti eigið met um tæpar fimm sekúndur og er fyrsti Íslendingurinn til að hlaupa vegalengdina á undir átta mínútum. Hann varð níundi í hlaupinu.
Hlynur hefur á síðustu árum eignast Íslandsmetið í sex vegalengdum utanhúss og bætt met ekki ómerkari manna en Kára Steins Karlssonar og Jóns Diðrikssonar.
Tígull óskar Hlyn innilega til hamingju með þennan magnaða árangur.
Forsíðumynd frá FRÍ.

