Þriðjudagur 5. desember 2023
bær Halldór B.Halldórs jól

Hlutabótaleiðin framlengd til 31. maí 2021

Réttur til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda, hlutabótaleiðin, hefur verið framlengdur og gildir nú til og með 31. maí 2021.

Samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar geta einstaklingar sem verið hafa í fullu starfi farið niður í allt að 50 prósenta starfshlutfall og átt rétt á atvinnuleysisbótum samhliða því starfshlutfalli.

Þá munu atvinnuleitendur fá greidd 6% af grunnatvinnuleysisbótum með hverju barni til og með 31. desember 2021 en áður gilti úrræðið til 31. desember 2020. Áætlaður heildarkostnaður ríkissjóðs vegna breytinganna er 6,7 milljarðar kr. Þar af fara 6 milljarðar króna í framlengingu á hlutabótaleiðinni og 700 milljónir króna í framlengingu á hækkun á greiðslum til atvinnuleitenda vegna barna.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Við sjáum vonandi fljótlega fyrir endann á því óvissuástandi sem hefur ríkt undanfarna mánuði vegna Covid-19 faraldursins. Það mun hins vegar taka einhvern tíma að komast algjörlega fyrir vind og við getum gert ráð fyrir því að ýmsar takmarkanir muni áfram vera viðvarandi eitthvað fram á árið. Úrræðið hefur nýst mjög vel en það eru mikil verðmæti fólgin í því að sem flestir haldi virku ráðningarsambandi við vinnuveitanda og að hér verði kröftug viðspyrna þegar faraldurinn hefur gengið yfir.”

Forsíðumynd Halldór B. Halldórsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is