Árið 2013 sigldum við nokkrir peyjar Sigurði VE til Danmerkur þar sem átti að rífa hann, með smá drykkjustoppi í Færeyjum
Hérna er frásögnin af því ævintýri sem ég skrifaði fyrir Sjómannadagsblað Vestmannaeyja árið 2014.

Aflaskipið Sigurður Ve hefur löngum eflt þjóðarbúið, enda veitt yfir miljón tonn. Þvílíkt happafley og hefur í gegnum árin tekið nokkrum stórum breytingum. Ég nenni ekki að fara yfir sögu skipsins í þessari frásögn því þetta er ferðasaga, síðasta siglingin.
Klukkan er fimm um morguninn, sólin er ný skriðin upp, byrjuð að hita upp malbikið og steypuna á bryggjunni. Dáleiðandi mistur líður um bryggjuna í nánast dúnalogni. Ég sit inni í löndunarskúr með Styrmi Gíslasyni og Halla Steina, þeir eru nývaknaðir. Halli Steini að taka hýðið utan af einni af þremur appelsínum sem hann tók með sér í nesti. Styrmir Gíslason eða Stymmi Bowie eins og hann er kallaður rífur utan af Herbalife sósupakkningu, hellir í vatn og byrjar að hrista.
Við horfum allir þrír út um vesturgluggann á Sigurð Ve þar sem það pústar lauflétt út um afgasgreinina. Ég hafði farið fyrr um nóttina og sett Sigurð í gang til að ganga úr skugga um að allt væri í himnalagi áður en Sævald og Freyr Atla tækju við vélarúminu, því þeir ætluðu að sjá um vélarúmið í hinstu siglingu Sigurðar VE.
“Þú ert nú eitthvað ruglaður ef þú ætlar að sleppa því að sigla Sigurði síðustu mílurnar og hvað þá ef þið ætlið að koma við í Færeyjum”, segir Styrmir Gísla og tekur stóran gúlp af Herbalife drykknum sínum. Lætur síðan vinstri hönd sína þurrka mjólkurskeggið af efri vörinni og munnvikum.
“Færeyjar er skemmtilegasti staður í heimi, yndislegt fólk og dáleiðandi náttúrufegurð”, segir Styrmir, á meðan Halli Steini slafrar í sig síðasta bitanum af appelsínunni: “Já… *slurp* *slurp* æðislegt í Færeyjum” heyrist í Halla Steina sem hljómar eins og hann sé holgóma með kjaftinn fullann af appelsínu.
“En ég er í vinnu hérna á Álsey og er að fara á sjó eftir löndun og verð fyrir töluverðri tekjuskerðingu við það að missa út tvo þrjá túra” segi ég. “Veistu hvað Ágúst minn, að segja góðar sögur af ævintýrum sínum kostar bara sitt, þú getur rétt ímyndað þér sögunar sem þú átt eftir að eiga eftir þessa siglingu”. Segir Styrmir á meðan hann hellir meðal limalengd af íslensku neftóbaki á handarbakið, ber loppuna að trýninu og hrýtir tóbakinu í sig, þó svo að meginhluti tóbaksins hrinur á gólfið, gefur Styrmir frá sér hljóð sem minnir á síðustu sekúnduna þegar maður slekkur á ryksugu og gervi fullnægingarhljóði úr gleðikonu í porti við Bremenhaven sem hefur drukkið of mikið Pikkalo.
“Jú þetta er rétt hjá þér, ég fer”, segi ég með uppsperrtan kassann eins og sjálfsánægður lundi í sumarblíðu rétt nýskriðinn úr holu. Tek upp kaffibollann sem er hálffullur af köldu kaffi og skelli því í mig, gretti á mér mér fránið og rík um borð í Álsey og rétti hana við.
Nokkrum klukkutímum síðar eða réttara sagt klukkan átta um morguninn er ég staddur um borð í Sigurði að græja og gera, koma vélarúminu í siglingarlegt stand. Með haugsugubíl á kæjanum til að þurrka kjölinn, svo hægt væri að komast í lensirörin sem voru orðin stífluð. Þarna fyrir ofan mig standa Sævald og Freyr Atla og byrjaðir að stúdera vélarrúmið. Ég labba að Frey Atla, og spyr hann hvort hann vilji ekki bara fara um borð í Álsey og leysa mig af. Ég og Sævald myndum bara sjá um þetta. Freyr var hæstánægður að komast á makrílinn á Álsey og tekur í hendina á mér og segir: “Ef ég á eftir að eignast annan peyja ætla ég að skíra hann í höfuðið á þér” sígur síðan létt upp í nefið, ég fer úr hönskunum og strík þumalputtunum létt undir sitthvor augun, þerra tárin og segi: “Þetta er allt í lagi, ég fæ bara að prufa Honduna sem þú ert að gera upp þegar hún er tilbúin og við erum kvittir” segi ég. “Heldur betur” segir Freyr og faðmar mig að sér og gengur ákveðið upp úr vélarúminu.
Eftir stöndum við Sævald, sem er æskuvinur minn, horfum á hvorn annan, stökkvum báðir upp í loftið, gefum hvor öðrum fæv og öskrum: “VIÐ ERUM AÐ FARA TIL FÆREYJA”.
Við förum báðir að gera og græja. Komum skipinu í siglanlegt stand. Upp úr hádegi fer Sigurður að vera tilbúinn.
Eftir hádegi ákveð ég að fara heim. Þar kemur Guðbjörg konan mín í anddyrið og segir: “Sæll elskan mín, ertu kominn heim? Ég hélt þú væri að fara strax á sjó eftir löndun”.
“Uuuuu nei, ég er að fara í frí”
“Frábært, þú ert ekki búinn að taka þér frí í svo langan tíma” segir Guðbjörg glöð á bragði.
Ég verð hálf skömmustulegur á svipinn og segi: “Uuuuu ég er ekki að fara í frí til að vera með fjölskyldunni. Ég er að fara að sigla Sigurði til Færeyja og þaðan til Danmerkur”.
Guðbjörg varð fljótt reið, en gat ekki látið bræðið í ljós vegna þess að hún veit að ég er ævintýramaður og fyrirvinnan á heimilinu. Einnig veit hún að ef hún myndi segja mér að að fara til vinstri þá færi ég til hægri. Svo hún tók þetta á sínu einstæða jafnaðargeði og samþykkti ferðina ef ég myndi fara í H&M fatabúðina sem er svona líka vinsæl að kaupa barnaföt.
Eftir að hafa pakkað niður var ekki aftur snúið. Eina sem ég hafði meðferðis var einn ágætis Bingó-galli, vinnuföt og rúta af Viking Gyltum. Fyrir siglinguna hafði ég verið reyklaus í hálft ár. En á meðan Guðbjörg var að skutla mér niður á bryggju segi ég snökt: “beygðu til vinstri. Komdu við í Toppnum. Ég sigli ekki Sigurði yfir djúpa öldudali Atlandshafsins án þess að reykja”.
Guðbjörg beygir bílnum og stoppar við lúguna. Í lúguna kemur Kalli í Toppnum og ég spyr hann: “Ég ætla að fá fjóra pakka af Salem hjá þér. En bíddu, varstu ekki hættur að vinna í Toppnum? Ég hélt að þú værir starfsmaður í þjálfun hjá Viðari Togga í FES-inu?”.
“Jú jú ég er en þá í þjálfun hjá Viðari Togga, ég tók bara eina vakt í Toppnum fyrir Níu systir. Þarf að vinna upp í hundrað og fjörutíu þúsund króna skuld sem varð eftir þegar ég seldi henni fyrirtækið” segir Kalli og verður dapur á svip.
“Vá það eru ekkert smá miklir peningar, hvernig varð þessi skuld eftir?”
“Ég skrifaði alltaf neftóbakið sem Stymmi keypti án vitundar Hófý. Síðan þegar ég seldi varð þessi skuld eftir og ég vill ekkert vera að segja Stymma frá þessari skuld á meðan hann er að drekka þessa Herbalæf drykki, hann er svo rosalega pirraður þegar hann er svangur”.
“Láttu mig þekkja það” segi ég. “Sjáumst Kalli minn og gangi þér vel að vinna upp í skuldina” segi ég aftur, tek við fjórum pökkum af sígarettum og set þær í ferðatöskuna. Bruna svo rakleiðis niður á bryggju.
Þegar niður á bryggju er komið er Sigurður orðinn fullur af fólki sem komið er til að líta á hann í síðasta skiptið. Margir fyrrum áhafnarmeðlimir gengu um skipið, með tárin í augum. Það tók sérstaklega á okkur Sævald þegar við löbbuðum niður í vélarúm. Við eltum hljóðið, þar til við sjáum Fritz í faðmlögum við stjórnborðs jafnstraumsvélina. Hann klappar henni létt og hvíslar: “Takk fyrir snúninginn elskan mín. Þú ert búin að standa þig eins og hetja alla þína tíð. Ekki slegið feilpúst”.
Að horfa á fullorðinn karlmann opna sig svona var erfitt, en eitthvað svo fallegt.
Um þrjú leitið ákváðum við Sævald að setja aðalvélina í gang og allan þann vélbúnað sem þurfti til að sleppa Sigurði og sigla á vit ævintýranna.
Smá vesen var á glussakerfinu, en ekkert sem við náðum ekki að redda. Á þessum tíma var bryggjan alveg stöppuð af fólki. Blaðamenn frá Morgunblaðinu, Eyjafréttum og Vísi. Sjónvarpsmenn frá Ríkissjónvarpinu sem tóku viðtal við kafteininn Sigurjón Ingvarsson fyrir brottför.

Veðrið var eins gott og hugsast gat orðið. Einn af fáum rigningarlausu sumardögunum sem við áttum og sólin skein í heiði. Þegar klukkuna fór að ganga fjögur var byrjað að fækka endum. Öllum nema einum. En þegar átti bara eftir að sleppa framendanum kom Guðbjörg Matthíasdóttir arkandi úr mannþvögunni og reif upp blý þungan spottann eins Lukku Láki sjálfur og sveiflaði honum út af bryggjunni. Horfir síðan til okkar, tekur niður sólgleraugun, brosir og veifar af söknuði. Það sáu það allir á bryggjunni að henni þótti vænt um Sigurð og ætti eftir að sakna hans.
Þegar við vorum búnir að baða höndum okkar út í loftið og veifa í átt til bæjarbúa eins og Neil Armstrong og félagar að fara í fyrstu tunglförina. Þá var lagt í hann. Sigurjón Ingvars kúplar inn og setur skurð á skrúfuna, Sigurður siglir frá bryggju í síðasta sinn.
Við vorum aldeilis ekki einir þegar við siglum út innsiglinguna. Hver og ein einasta tuðra og smábátur sigldi með okkur fyrstu mílurnar. Tignarlegt og fallegt.
Núna vorum við komnir á siglingu og stefndum beina leið á Færeyjar þar sem við áttum að koma við til að sækja eina litla ljósavél og smá dót með.
Í áhöfn voru Sigurjón Ingvarsson skipstjóri, Jón Bakki 1. stýrimaður/túlkur/matsveinn, Raggi Inda 2.stýrimaður/matsveinn og vélstjórarnir Sævald Páll Hallgrímsson og undirritaður Ágúst Halldórsson. Ferðin gekk vel og elduðu stýrimennirnir dýrindis pulsur fyrsta kvöldið. Að fara upp í brú eftir að hafa borðað pulsur setjast þar, horfa á sólina leika við spegilslétt hafið og fá sér eina sígarettu var ólýsanlegt.
Fyrstu klukkutímarnir voru þægilegir og fór Sigurður vel með okkur. Brúarspjall um nóttina hjá vakthafandi vélstjóra og stýrimanni. Rétt fyrir hádegi datt sjálfstýringin út. Sigurjón Ingvars hringir niður í vél og lætur vita að sjálfstýringin sé dottin út. Ég og Sævald rjúkum upp og förum að bilanagreina með skipstjóra og vakthafandi stýrimanni. Á meðan skiptum við stýringunni yfir á handstýringu, sem þýðir að Sigurjón stóð við rattið og stýrði skipinu handvirkt. Mjög tignarlegt, en mjög leiðinlegt til lengdar. Þeir skiptu þessu á sig á meðan við vélstjórarnir rifum upp sjálfstýringuna og tókum eftir því að einn af fjórum transistorunum var brunninn, ónýtur. Ég segi Sigurjóni frá því og þá segir hann: “Það er ekkert við því að gera, nema að stýra skipinu til Færeyja og fá rafvirkja til að græja nýjan transistor þar”.

Sigurjón að handsstýra Sigurði.
Það var samþykkt. Á þessum tíma eða um eitt eftir hádegi fór ég í koju og Sævald tekinn við vaktinni. Þegar ég lá í koju gat ég ekki hætt að hugsa um þennan transistor og klukkan svo orðin tvö og ég ekki enþá sofnaður þá fæ ég þessa hrikalega góðu hugmynd. Stend upp, klæði mig í buxur og skelli mér í hlýrabolinn, í inniskóna og upp í brú. Ríf þar í sundur gamlan prentara og bingó. Auðvitað var transistor þar. Þá var farið í það að ná honum heillegum af prentplötunni, sem gekk líka svona aldeilis vel.
Þegar ég kem upp er Sigurjón alveg búinn að fá sig fullsaddan á því að stýra skipinu á rattinu og spyr: “Hvað ert þú að gera hérna? Áttu ekki að vera í koju?”
“jú, ég fékk bara svo hrikalega góða hugmynd og verð bara að fá að láta reyna á hana” segi ég og ríf upp hlerann á púltinu, fer inn og byrja að losa gamla transistorinn og lóða þann heillega við brettið.
Síðan eftir svona þrjátíu mínútur kem ég út úr púltinu, kúsveittur og segi við Sigurjón: “prufaðu að setja á sjálfstýringuna á”.
Sigurjón fer og stillir á sjálfstýringuna og segir strax: “Þetta helvítis drasl virkar ekki”.
Þá fattaði ég, að ég var en þá með öryggið í vasanum, fer aftur inn og set öryggið í sjálfstýringuna. Segi síðan Sigurjóni að prufa aftur. Sem hann gerir og vitir menn, sjálfstýringin virkaði.
Sigurjón var svo ánægður að hann fór beint í kallkerfið og kallaði niður í vélarúm: “Sævald, komdu upp í brú strax”. Hann var ekki búinn að sleppa takkanum á kallkerfinu þegar Sævald var kominn upp og hélt að um neyðartilvik hafi verið um að ræða.
“Hvað? Hvað?” segir Sævald másandi og blásandi enda búinn að slá hlaupamet um borð í skipi.
“Hlauptu niður í messa og farðu niður í kæli og náðu í þrjá bjóra handa okkur. Þessu ber að fagna”.
Fimm mínútum síðar sitjum við þrír í brúarspjalli í blíðuveðri með bjór og horfum á Færeysku sjófuglana birtast út úr þokunni. Það var gott að fara að sofa eftir þessa reddingu hjá okkur og hvað eftir bjórinn.
Um kvöldið eða um níu leitið förum við að sjá Færeyjar. Það var vel byrjað að rökkva þegar við siglum með Færeyjum áleiðis til Þórhafnar. Allir um borð voru komnir á ágætis þurrafyllirí og var landspenningurinn orðinn nær óbæranlegur um tíu um kvöldið þegar við erum staddir nokkrum sjómílum fyrir utan Þórshöfn.
“Hvað er þetta er enginn lóðs hérna?” segir Sigurjón og er orðinn hálf óþolinmóður að bíða eftir svari úr stöðinni þar sem enginn svaraði í stöðina.
“Ég nenni ekki að bíða eftir þessu rugli. Við förum bara inn” segir Sigurjón og setur á fimmtíu prósent skurð á skrúfuna og lullar Sigurði inn til Þórshafnar eins og heimamaður með fjörutíu ára reynslu af siglingum inn til Þórshafnar.
Þegar inn var komið leggur Sigurjón Sigurði að bryggju og við vorum varla byrjaðir að binda skipið kemur hafnsögumaðurinn mjög svo hissa og varð hálf fúll yfir því að við skildum sigla sjálfir inn án nokkurrar leiðbeiningar. En hann var auðvitað Færeyingur og mjög hress og flottur. Ég og Sævald spurðum hann auðvitað beint út í pöbbann, það var nú fimmtudagur og vorum við pottþéttir á einhverju fjöri. Hafnsögumaðurinn brettir upp vinstri ermina og segir síðan: “Tví midur pöbben er loked nu”.
Það voru vonbrigði, en stoppaði okkur ekki. Við áttum fullt af bjór og helltum í okkur eins og fyrrum síðutogaraáhafnarmeðlimir á Sigurði langt fram á mið nótt.
Klukkan átta um morguninn kom hafnsögumaðurinn um borð með offorsi og sagði að við værum á vitlausum kæja og ættum að færa okkur strax. Við Sævald hlupum niður og settum í gang, fórum síðan upp á dekk að hjálpa Jóni Bakka og Ragga að losa og binda svo aftur.

Þegar við vorum komnir á hinn kæjann. Sáum við eitthvað drasl á bryggjunni sem við áttum greinilega að taka með til Danmerkur. Ég man eftir að hafa hugsað: “andskotinn sjálfur, við verðum ekki lengur en fjóra fimm tíma að koma þessu drasli um borð”. Þá kemur Mortan, sem var daninn sem var að kaupa Sigurð til niðurrifs. Hann er hálf skömmustulegur þegar ég spyr hann hvort þetta sé allt sem við ættum að taka. Hann svaraði því neitandi og fékk okkur úr áhöfninni til að kíkja með sér inn í eina vélsmiðjuna sem var stútfull af drasli. Hann benti yfir allan hauginn og sagði: “ég ætlaði mér að taka flest af þessu dóti með”.
Við í áhöfninni brostum okkar breiðasta því við vissum það að þetta væri tveggja daga verk. Ég og Sævald vorum strax mjög harðir á því að allt yrði fyllilega soðið fast sem færi niður í lestarnar og allt saman sem færi á dekkið.
Við förum aftur um borð, opnum okkur allir einn bjór, skálum og ákveðum að kíkja í sund. En eins og nánast undantekningarlaust er rigning í Færeyjum og við rötuðum ekkert. Það var reyndar ekkert mál, við fórum bara frá borði og vorum ekki komnir hundrað metra frá bryggjunni þegar einhver Færeyingur var búinn að stoppa okkur og bjóða okkur far. Yndislegt fólk alveg.

Síðan upp úr hádegi fórum við að borða á Hótel Þórhöfn og þá byrjaði ballið þar sem tappinn var tekinn úr flöskunni og hent út um gluggann. Fórum út um alla Þórshöfn og drukkum allt sem að kjafti komst. Sigurjón Ingvars hafði komið ári áður með hóp af fólki frá eyjum og lóðsaði okkur hina um Þórshöfn eins og herforingi. Ég keypti mér ekta færeyska peysu sem mér þykir mikið vænt um, en ekki eins mikið og þegar ég komst að því að hún kostaði þrjátíu þúsund. Það skiptir reyndar mjög litlu máli því þetta voru bara útlenskir peningar.
Þegar klukkan varð að vera sex um kvöldið þá voru menn orðnir heldur betur hífaðir og þá fátt annað að gera en að fá sér að borða. Við fórum á einhvern flottan veitingastað sem ég man ekki hvað hét og pöntuðum okkur þessar vænu steikur og allt með. Þetta borðuðum við með bestu list en þegar klukkuna fór að ganga hálf átta þá var tekin sameiginleg ákvörðun að við myndum allir labba um borð og leggja okkur til miðnættis svo við hefðum eitthvað í Færeyingana í drykkju. Þannig að við borguðum reikninginn og skökkuðumst um borð þar sem Mortan var á fullu að græja um gera til að koma draslinu um borð. Nóg var eftir, svo við héldum í koju.

Klukkan tuttugu mínútur yfir tólf heyri ég kallað inn í klefa til mín: “Þetta er í síðasta skiptið sem ég ætla að reyna að ræsa þig. Ef þú vaknar ekki núna þá eruð þið búnir að missa af föstudagskvöldinu á Þórshöfn í Færeyjum” sagði Jón Bakki og við þessi orð fór heilinn aðeins að vinna, augun galopnuðust og ég reis upp. Hleyp inn í klefa til Sævald og hristi hann og við förum saman að ræsa Sigurjón og síðast Ragga Inda, en hann vildi ekki vakna. Svo við hinir fjórir fræknu hittumst í borðsalnum. Það mátti vel sjá á okkur að við værum vel þreyttir en það stoppaði okkur ekki. Sævald fór inn í kæli og náði í kassa af Föroja bjór og skellti á borðið. Við reyndum að reyna að torga fyrsta, en listin var eitthvað lítil. Þá segir Sigurjón: “hva, eruð þið þunnir?” og klárar síðasta sopann af bjórnum sínum, kremur dósina og hendir henni í ruslið sem er staðsett um fjóra metra frá honum.
“Uuuuuu… nnnneeee, jaaaa” segjum við báðir í kór.
“Hættið þessu helvítis rugli strákar. Orðið þunnur er búið til af húðlötum aumingjum. Hendið þið þessu í ykkur” segir Sigurjón og byrjar að gefa spil í Gúrku.
Við þessa ræðu efldust við upp og rukum beint í gírinn. Spiluðum nokkrar Gúrkur, drukkum bjór og upp úr hálf tvö var ákveðið að kíkja út á lífið. Við klæðum okkur í bingógallana röltum niður landganginn, bryggjuna og inn á fyrsta skemmtistaðinn. Við allir eins og greifar eftir svefninn og spilið. Það var reyndar alveg til einskis því Færeyingarnir voru allir eins og hestamenn í sínu síðasta Hestamannamóti. Allir alveg á rassgatinu og slefandi í hárið á hvorum öðrum. Það skipti reyndar ekki miklu máli því þeir voru hrikalega skemmtilegir og hitti Sigurjón fararstjórann sinn sem var með hann árinu áður um Færeyjar, hann Sveinur. Hann var alveg rosalega skemmtilegur, kunni endalaust af góðum sögum og fannst ekki leiðinlegt að hitta Sigurjón og fá sér í glas með okkur peyjunum. Hann rölti með okkur og sýndi skemmtanalíf Þórshafnar og var gaman að sjá þessa skemmtistaði með berum augum því alltaf er maður að heyra sögur frá Færeyjum á sjónum. Um fimm leitið var búið að loka öllu og ákváðum við þá að fara um borð, vorum frekar rallandi og höfðum það ekki í okkur að skilja hálfan kassa af bjór særðan á borðinu inn í messa. Svo við aflífuðum hann og fórum í koju.
Um hádegi vöknuðum við en þá með vott af gærkvöldinu í okkur en hörkuðum það fljótlega af. Skvettum vatni framan í okkur og fórum út á dekk. að spjalla við Mortan. Sem var að klára að slaka síðustu tíu tonna vélinni aftur á, ein af þremur sem fór þangað. Ég bað hann um að hafa aðeins stjórnborðshalla á bátnum því mest af olíunni sem við áttum eftir var stjórnborðsmeginn. Hann játaði því og sagði okkur að við gætum farið út um átta.
Eftir það fórum við í sund og síðan í SMS sem er einskonar Kringla Færeyinga og löbbuðum um bæinn eins og annálaðir Góðtemplarar. Komum okkur síðan um borð um sex leitið og var þá verið að sjóða síðustu suðurnar til að festa vélarnar aftur á.
Klukkan hálf átta voru suðumennirnir farnir að taka til og koma sér frá borði og taka suðudótið frá borði. Þá fóru ég og Sævald niður og þrusuðum jafnstraumsrafalanum í gang, omformerinum og aðalvélinni. Fórum síðan með peyjunum að leysa landfestar en þegar við losuðum síðustu landfestina, datt báturinn auðvitað fimmtán gráður í bak. Það hafi verið það mikil spenna á landfestitóginu þegar Mortan var að láta þá raða í skipið að það var allt kolvitlaust. Þegar við erum búnir að sleppa hleypur Mortan upp úr skipinu öllum að óvörum og hoppar í land til að geta tekið flugið til Danmerkur og tekið á móti okkur þar.
Svo þegar við förum að sigla frá bryggju og út frá Þórshöfn gat ég ekki alveg notið útsýnisins því ég var niðri í vél að reyna að dæla allri þeirri litlu olíu sem við áttum til að rétta skipið sem tókst að lokum á síðasta dropanum.
Þegar við sigldum frá Færeyjum var komið skíta veður sem átti eftir að elsta okkur nær alla leið til Danmerkur. Tuttugu metrar á sekúndu aftur á hornið stjórnborðsmegin og stöðugleikinn á skipinu búinn að skerðast alveg helling við allt þetta drasl sem við vorum að flytja.
Þessi síðasti leggur var ekkert svakalega skemmtilegur veðurfarslega og sjólega séð. En gaman var að sigla í gegnum Norðursjóinn og sjá alla olíuborpallana þegar eldstrókarnir stóðu upp úr þeim, ótrúlega flott.

Síðasta daginn á siglingunni kallar Sigurjón niður í vél: “það er orðið vatnslaust” og ég man að eina sem ég hugsaði var: “djöfullinn sjálfur”. Því við vorum þá búnir með síðasta vatnstankinn af ágætis vatninu okkar og eftir var bara vatnstankur sem grútur lak út í tveimur árum áður. Ég prufaði að skipta á hann og það passaði. Vatnið var ógeðslegt, svart og lyktaði verr en allt sem maður hafði áður fundið lyktina af.
Það var reyndar svo lítið eftir að það tók því ekki að pirra sig á þessu. Skipið lyktaði reyndar mjög illa og ekki gátum við farið í sturtu lengur. Við vorum farnir að nálgast Danmörk enda hitastigið orðið um tuttugu og fimm gráður um borð.
Allir sátum við í svitabaði og spiluðum síðustu Gúrkuna í skipstjóraklefanum áður en við fórum að sigla eftir baujum.
Síðasta spilið sem spilað var um borð í Sigurði vann Sigurjón Ingvars og var hann mikið ánægður með.

Eftir það sigldum við eftir baujunum, það var aðeins byrjað að rökkva en þetta gekk vel. Þangað til við vorum komnir alveg inn, því við vissum ekkert hvert við ættum að fara. Þá hringir Mortan og segir að bróðir hans sé á vespu niður við svæðið þeirra að veifa vasaljósi.
“Hvaða djöfulsins rugl er þetta?” sagði Sigurjón. Við skimuðum allir út um gluggana í brúnni þangað til Sævald sá einhvern með vasaljós og við sigldum þá leið. Þegar við komum að bryggjusvæðinu þeirra, þá stendur bróðir Mortan með vasaljósið með vespuna á milli fóta og aftan á konuna sína sem var örugglega um hundrað og fimmtíu kíló og meter á hæð. Þetta gladdi marga áhafnarmeðlimi.

Það var um tíu manns á bryggjunni að taka á móti okkur. Fjölskylda Motran sem hefði alveg vel getað verið ný komin út einhverri grínmynd.
Þegar Mortan kom um borð þá sagðist hann því miður ekki hafa getað reddað okkur hótelherbergi og við þyrftum að gista um borð. Hann gat samt leyft okkur að fara upp í smiðju hjá sér og fara í sturtu. Sem við síðan gerðum.
Þegar við vorum búnir að fara í sturtu og græja okkur ákváðum við að kíkja eitthvað út á lífið svo við pöntuðum leigubíl. Síðan biðum við spenntir eftir honum en eftir um korters bið hrindum við aftur og fengum við þá að vita það að hann hafi ekki fundið þetta bryggjustæði sem við vorum á. Þannig að við fórum bara í koju.
Daginn eftir um morguninn förum við að skila af okkur skipinu á fundi við Mortan. Það kom skemmtilega á óvart að hann hafi farið með einhver tvö hundruð karton af sígarettum og falið þau um borð í Þórshöfn til að smygla til Danmerkur, einnig faldi hann fimmtíu lítra af Lýsi um borð þegar hann kom til Vestmannaeyja að kaupa skipið. En það gekk ágætlega á fundinum. Fengum við frá honum lestarmiða og flugmiða og einhvern vasapening. Við löbbuðum allir að Sigurði og létum taka mynd af okkur fyrir framan hann á meðan mamma og kona Mortan biðu með að skutla okkur út á lestarstöð. Ég setti töskuna mína í skottið. Labbaði síðan að Sigurði, setti hönd mína á hann og kvaddi.
Settist síðan inn í bíl og hann keyrði af stað. Síminn minn hringdi. Ég svaraði og þar var það konan mín Guðbjörg Erla á hinni línunni sem sagði: “Hvernig í andskotanum tókst þér að eyða meiri peningum í Færeyjum en þú fékkst fyrir það að fara með Sigurð til Danmerkur í brotajárn?”
Ég dreg djúpt andan og segi: “sendu mér listann hvað ég á að kaupa á krakkana og þig í þessari H&M” en hugsa á meðan: “helvítis heimabanki!”.

