U-18 ára landslið karla lék gegn Ítölum í hádeginu í gær, þetta var síðasti leikurinn í milliriðli keppninnar en strákarnir okkar höfðu þegar tryggt sér efsta sætið í milliriðlinum. Eftir erfiða byrjun þar sem ítalir komust í sex marka forystu snéru strákarnir leiknum við og leiddu með einu marki í hálfleik. Í síðari hálfleik réðu strákarnir lögum og lofum á vellinumog varð munurinn mest 10 mörk. Lokatölur 34-28 Íslandi í vil.
Eyjamaðurinn Hinrik Hugi Heiðarsson átti frábæran leik og var valinn besti leikmaður íslenska liðsins en hann skoraði 2 mörk í leiknum.
Næst tekur við krossspil um 9. – 12. sæti þar sem íslenska liðið leikur við annað hvort Frakka eða Slóvena á föstudag.

