Hann Guðumundur Örn prestur segir skemmtilega frá á facebook síðu sinni í morgun
Á nýársdag árið 1981 var efnhag Íslands kippt í lag með því að taka tvö núll af krónunni. Gamli 100 krónu seðillinn varð að einni nýrri krónu.
Kvikmyndin Englar alheimsins var frumsýnd árið 2000 og enn fyrr, eða árið 1910 tóku íslendingar til við að mæla lengd og hæð í metrum.
Það er ljóst að miklir atburðir hafa átt sér stað við landamæri nýrra ára og á nýársdag 2020 munu verða ákveðin tímamót þegar Hildur Sólveig Sigurðardóttir mun prédika í fyrsta sinn í Landakirkju.
Guðsþjónustan hefst kl. 14.00, kór Landakirkju mun syngja undir stjórn Kitty Kovács og ég ætla svo að snúast við altarið.


