06.10.2020
Stjórnvöld hafa boðað hertar aðgerðir vegna aukinna covid smita í þjóðfélaginu. Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands er nú grímuskylda á öllum starfsstöðvum til að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks.
Reynt verður að halda þjónustu óbreyttri eins og hægt er, mikill tími starfsfólks HSU fer í að sinna sýnatökum og fleiru tengt COVID-19 sem óhjákvæmilega bitnað á annarri þjónustu.
Ef skjólstæðingar eiga pantaðan tíma hjá lækni en telja að leysa megi erindið í síma, geta þeir óskað eftir breytingu á viðtalinu og fengið símaviðtal í staðinn.
Upplýsingar um COVID má finna á heimasíðu HSU. Við minnum á heilsuvera.is en þar er m.a. hægt að endurnýja lyf með rafrænum hætti.
Erfitt er að eiga við þessar breytingar og röskun sem er í gangi í öllu þjóðfélaginu og biðjum við því fólk að sýna biðlund og þolinmæði, segir í frétt á vefsíðu stofnunarinnar.