14.12.2020
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinni part dags samkvæmt eftirfarandi áætlun, þar sem enn er ófært til Landeyjahafnar vegna öldulengdar og brotsjós
Brottför frá Vestmannaeyjum kl 16:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl 19:45
Aðrar ferðir hafa því verið felldar niður. Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við afgreiðslu í 4812800 eða herjolfur@herjolfur.is
Hvað varðar siglingar morgundagsins, 15. desember, verður gefin út tilkynning í síðasta lagi fyrir kl 06:00 í fyrramálið.
Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Við biðlum einnig til farþega okkar að virða grímuskylduna um borð í ferjunni sem og að huga vel að sóttvörnum.