Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinni partinn.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl 16:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45
Aðrar ferðir hafa verið felldar niður og biðjum þá farþega sem áttu bókað á eftirfarandi tímum að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 4812800.
Þ.e. frá Vestmannaeyjum kl. 18:30 og 21:00 og í kjölfarið frá Landeyjahöfn kl 17:15 og 22:15
Hvað varðar siglingar morgundagsins, 16. janúar verður gefin út tilkynning fyrir kl 06:0 í fyrramálið.
–
Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Við biðlum einnig til farþega okkar að virða grímuskylduna um borð í ferjunni sem og að huga vel að sóttvörnum.
Þeir farþegar sem ætla sér að nota gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eigin búnað og bera ábyrgð á sóttvörnum á sínu svæði.

