Herjólfur sigldi fyrstu ferð dagsins til Þorlákshafnar þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og ölduhæðar þar.
Hvað varðar siglingar seinnipartinn í dag, verður gefin út tilkynningu fyrir kl. 14:00 í dag. „Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir faratæki í annarri hvorri höfninni (Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn),“ segir í tilkynningu frá Herjólfi.
Samkvæmt ölduspá á vef Vegagerðarinnar á aldan að ganga aðeins niður seinni partinn í dag en rís svo aftur í nótt og má því búast við að siglt verði til Þorlákshafnar næstu daga.