Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag, sunnudaginn 1. nóvember, og fór fyrsta ferð frá Vestmannaeyjum kl. 07:00. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi verður siglt til Landeyjahafnar þar til annað verður tilkynnt
Áætlun dagsins
- Frá Vestmannaeyjum: kl. 07:00, 09:30, 12:00, 14:30, 17:00, 19:30 og 22:00
- Frá Landeyjahöfn: kl. 08:15, 10:45, 13:15, 15:45, 18:15, 20:45 og 23:15
Ekki skilja bílinn eftir
Herjólfur minnir á að á þessum árstíma er alltaf hætta á að færa þurfi siglingar á milli hafna. Farþegum er því ráðlagt að skilja bíla ekki eftir í annarri hvorri höfninni.
Veðrið í dag
Engar veðurviðvaranir eru í gildi samkvæmt vef Veðurstofu Íslands. Spáð er sunnan- og suðvestanátt, 5–13 m/s, og súld öðru hverju, en hiti verður 4–9 stig þegar líður á daginn. Í kvöld bætir í rigningu vestan til á landinu.
Farþegar eru hvattir til að fylgjast með tilkynningum frá Herjólfi, og fréttin verður uppfærð ef áætlun breytist.
Mynd: Heimir Hoffritz

