21.10.2020
Viðvörun fyrir næstu daga
Við viljum vekja athygli á að veðurhorfur fyrir næstu daga sýnir bæði mikið hvassviðri og rísandi öldu.
Biðjum því farþega um að fylgjast með á miðlum Herjólfs um stöðu siglinga fyrir næstu daga.
Hvað varðar siglingar morgundagsins, fimmtudaginn 22. október verður gefin út tilkynning í síðasta lagi fyrir kl 06:00 í fyrramálið.
Öruggu ferðir Herjólfs eru eftirfarandi ferðir sem færast sjálfkrafa ef siglt er til Þorlákshafnar:
frá Vestmannaeyjum kl 07:00 og 17:00 og
frá Landeyjahöfn/Þorlákshöfn kl 10:45 og 20:45
– Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
-Þeir farþegar sem ætla sér að nota gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað og bera ábyrgð á sóttkvörnum á sínu svæði.
ATH það er EKKI talið að veður hafi áhrif á siglingar út daginn í dag, 21. október
Forsíðumynd Tói Vídó