Fimmtudagur 15. október 2026

Herjólfur III mun taka við af Baldri í haust

Herjólfur III hefur formlega verið leigður SSL, Strandfaraskip Landsins, ríkisstofnun Færeyja sem sér um almenningssamgöngur. Samningurinn tók gildi 1. júní og gildir til 1. september 2023. Vegagerðin telur samninginn ákaflega mikilvægan enda dýrt og óhentugt að geyma svo stórt skip við bryggju og hafa það ekki í reglulegri notkun.

Verður áfram varaskip fyrir nýja Herjólf

Herjólfur III verður áfram varaskip fyrir nýja Herjólf og með þessu fyrirkomulagi verður hann mun betur til þess fallinn að þjóna því hlutverki. Herjólfur III mun fá reglulegt viðhald og þar sem á honum verður áhöfn má segja að viðbragðstími verði í raun styttri ef óvænt atvik koma upp, heldur en þegar skipið er bundið við höfn í Vestmannaeyjum.

Undirbúningur er hafin svo Herjólfur geti sinnt siglingum á Breiðafirði

Til stendur að Herjólfur III muni taka við siglingum á Breiðafirði í lok leigutímans nema annað hentugra skip finnist í stað Baldurs. Ekki er hægt að nýta Herjólf III á þeirri leið strax en unnið er að undirbúningi breytinga á hafnarmannvirkjum í Stykkishólmi og Brjánslæk svo Herjólfur III eða annað sambærilegt skip geti lagt þar að.

Herjólfur III er kominn til Færeyja þar sem hann fer fyrst í slipp en mun síðan sigla svokallaða Suðureyjarleið, frá Þórshöfn til Suðureyjar. Skipið verður aðallega nýtt sem vöruflutningaskip en verður einnig afleysingaferja með farþega ef þörf krefur.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search